Fjölskyldumaður á þingi og í fótbolta Lilja Björk Hauksdóttir skrifar 28. apríl 2014 11:00 Þingmaðurinn Willum segir lífið hafa gjörbreyst á jákvæðan hátt við að taka sæti á Alþingi. Hann fórnaði þó fótboltanum fyrir þingið en ætlar að snúa aftur á völlinn í sumar. Mynd/Daníel
Helgarnar eru fjölskyldutími hjá þingmanninum Willum Þór Þórssyni. „Það er heilög regla að eyða helgunum með fjölskyldunni. Síðan ég settist á þing hafa samvistirnar með henni minnkað, þingfundir standa oft langt fram á kvöld þannig að ég sé minna af börnunum mínum,“ segir Willum. Hann á fimm börn á aldrinum fimm til fimmtán ára þannig að oftast er mikið fjör á bænum. „Það skiptir mestu máli að vera bara saman. Krakkarnir eru öll í íþróttum, bæði fimleikum og fótbolta, þannig að helgarnar fara að miklu leyti í að fylgja þeim í þær sem er mjög skemmtilegt. Við reynum líka að fara stundum í Bláfjöll og erum dugleg að fara í Bláa lónið, enda er konan að vinna þar og krakkarnir hafa gaman af því.“Spennufall og sumarfrí Willum hefur verið viðloðandi fótboltaheiminn síðan hann var fimm ára. Hann var þekktur leikmaður og ekki síður þjálfari enda hefur hann gert bæði Val og KR að Íslandsmeisturum. Þegar hann var kjörinn á þing seinasta vor fórnaði hann hins vegar bæði boltanum og starfi sínu sem kennari. „Sumarið í fyrra var fyrsta sumarið síðan 1980 sem ég tek ekki þátt í Íslandsmóti í meistaraflokki. Það var mjög skrítin tilfinning að vera ekki með og hálfgert spennufall. Ég vissi varla hvað ég átti að gera við mig en við fjölskyldan fórum í langþráð sumarfrí til Spánar og náðum þar góðri slökun saman.“Saknaði fótboltans og sneri aftur Fótboltinn á sterk ítök í Willum þannig að þegar Breiðablik leitaði til hans á dögunum og bað hann að verða aðstoðarmaður Guðmundar Benediktssonar við þjálfun meistaraflokks karla svaraði hann kallinu. „Mér þótti vænt um að Gummi og félagið leituðu til mín. Þetta er kjörið tækifæri til að halda tengslum við boltann en ég fann að ég saknaði hans. Ég á sterkar rætur í Breiðabliki enda spilaði ég þar sjálfur og svo eru öll börnin mín þar. Hins vegar slær hjartað alltaf með KR þar sem ég er alinn upp,“ segir Willum og brosir. Aðspurður hvort það eigi ekki eftir að verða erfitt fyrir gamla þjálfarann að vera kominn í farþegasætið sem aðstoðarþjálfari segist hann ekki telja það. „Ég hef svo mikla trú á Gumma sem þjálfara að ég hef engar áhyggjur af því. Ég hef líka lært ákveðið umbyrðarlyndi fyrir ólíkum skoðunum sem þingmaður og það á eftir að hjálpa mér á þessum vettvangi.“Þjálfarinn Willum leiddi sína menn í Val til sigurs í Íslandsmótinu árið 2007. Þar fögnuðu þeir Guðmundur Benediktsson saman en þeir eru nú sameinaðir á ný í Breiðabliki. Mynd/VilhelmPuðað á þingi Willum segir það hafa gjörbylt lífinu að fara á þing en það hafi verið jákvæð breyting. „Ég gæti bæði svarað því játandi og neitandi hvort starfið sé eins og ég bjóst við fyrir fram. Þetta er eins og með allt annað, mikil vinna ef vel á að vera. Mér fannst til dæmis magnað að upplifa það að þegar þingfundi lýkur klukkan tvö að nóttu áttu samt að vera mættur lesinn á nefndarfund klukkan níu morguninn eftir. Þegar ég stóð sjálfur fyrir utan var viðhorfið til Alþingis ef til vill ekki alltaf jákvætt en hér er fólk bara að puða og vinna og það er ánægjulegt að sjá það.“ Hann segir vinnustaðinn skemmtilegan, samstarfsfólkið litríkt og með mismunandi skapgerð. „Alþingismennska er ekki kennd í háskóla, það er víst. Þar þarf að bregðast hratt við og vera hörkuduglegur. Það er hollt fyrir Alþingi að það endurspegli þjóðfélagið á breiðan hátt og mikilvægt að þar sé fólk sem kemur alls staðar að bæði hvað varðar menntun og starfsreynslu.“ Í þingmennskunni hef ég þurft að stíga út úr því þægindaumhverfi sem ég var búinn að koma mér upp í kennslunni og íþróttunum og það hefur verið mjög þroskandi.“ Ótrygg framtíð Bæði þingmanns- og þjálfarastarfið eru nokkuð ótrygg til lengri tíma litið og segist Willum ætla að skoða stöðuna þegar þar að kemur. „Mér fannst ég eiga erindi í Framsóknarflokkinn og fór í þingmannsstarfið af fullum krafti. Hér ætla ég svo að vinna vel í fjögur ár og skoða stöðuna að þeim tíma liðnum. Þjálfarastarfið bar brátt að og ég verð í því út september og sé svo til. Mér finnst gott að hafa nóg að gera og finnst það forréttindi að hafa úr tækifærum að velja.“
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira