Þörf á túlkun metin þrátt fyrir lögbundinn rétt 28. janúar 2014 07:00 Í lögum um sjúklinga er skýrt tekið fram að sjúklingur sem ekki tali íslensku eða notar táknmál skal tryggð túlkun á upplýsingum. Nordic photos/Getty
Eingöngu heilbrigðisstarfsmenn panta túlka hjá Heilsugæslunni og meta hvort þörf sé á slíku, segir Jónas Guðmundsson, fjármálastjóri Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, þegar hann er spurður um reglur í túlkaþjónustu fyrir útlendinga sem tala ekki íslensku.Í Fréttablaðinu í gær kom fram að víða séu brotin lög um túlkaþjónustu á Íslandi og ekki kallaður til túlkur þótt viðkomandi hafi rétt á því. Nefnt var dæmi um konur sem fá eingöngu tvisvar túlk í mæðraeftirliti. Jónas segir engar takmarkanir vera á fjölda skipta sem sjúklingur fái túlk en þar sem heilbrigðisstarfsmenn sjái um samskipti við skjólstæðinginn byggi túlkaþjónustan á áliti þeirra. „Starfsmaður sér hvernig gengur að eiga samskipti við viðkomandi, og hvort það þurfi að kalla til túlk yfirhöfuð eða kalla til túlk í fleiri skipti. Ef skjólstæðingur óskar eftir túlki þá ræðir hann það við starfsmanninn sem tekur ákvörðun um málið.“Margrét SteinarsdóttirMargrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, segir að í lögum um réttindi sjúklinga sé skýrt tekið fram að „eigi í hlut sjúklingur sem ekki talar íslensku eða notar táknmál skal honum tryggð túlkun á upplýsingum.“ „Þótt sjúklingur geti bjargað sér á íslensku í daglegu máli er ekki þar með sagt að hann skilji flókið læknamál til fullnustu eða geti spurt spurninga sem eru mikilvægar. Það kemur hvergi fram í lögum að meta eigi hvort þörf sé á túlkun heldur eru réttindi til túlkunar afdráttarlaus. Það er varhugavert að setja reglur sem ganga lengra en lögin mæla fyrir.“ Jónas segir útgjöld vegna túlkaþjónustu hafa hækkað um 29 prósent á síðasta ári og sextán milljónir hafi verið greiddar fyrir þjónustuna. Hann segir stefnuna vera að samskipti séu sem mest bein á milli sjúklings og heilbrigðisstarfsmanns og ekki sé mælt með að ættingar eða vinir sjái um túlkunina. Sama stefna er á Landspítalanum. Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, segir að unnið sé eftir lögum um rétt sjúklinga þótt ekki sé hægt að svara fyrir einstök atvik. Hún segir nokkra aukningu hafa verið í pöntunum á túlkum á spítalanum en á síðasta ári voru greiddar rúmar tuttugu milljónir fyrir þjónustuna.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira