Innlent

Ráðherra svari Skagfirðingum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra er beðinn um samráð.
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra er beðinn um samráð.
„Það algera áhugaleysi sem ráðherrar í ríkisstjórn Íslands undir forystu Framsóknarflokksins sýna málefnum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki er vægast sagt sláandi,“ segir í bókun Sigurjóns Þórðarsonar, fulltrúa Frjálslyndra og óháðra í sveitarstjórn Skagafjarðar.

Sveitarstjórnin ítrekaði á fundinum ósk frá 9. janúar um að Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra svari erindi sveitarfélagsins frá 11. október vegna sameiningar heilbrigðisstofnana á Norðurlandi. Sveitarstjórnin er andsnúin sameiningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×