Innlent

Flestir vilja sjá Dag sem borgarstjóra

Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson
Rétt tæplega helmingur þeirra, sem spurðir voru í könnun Félagsvísindastofnunar Háskólans fyrir Morgunblaðið, vill að Dagur B. Eggertsson verði næsti borgarstjóri.

Þetta eru mun fleiri en ætla að kjósa Samfylkinguna, sem hann leiðir og mun fleiri en í sambærilegri könnun, sem gerð var í nóvember.

Tuttugu prósent styðja Halldór Halldórsson fyrsta mann á lista Sjálfstæðisflokksins, sem bætir töluvert við sig frá fyrri könnun, og rúm tíu prósent styðja Björn Blöndal, leiðtoga Bjartrar framtíðar. 40 prósent voru óákveðin, eða vildu ekki svara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×