Innlent

Samsæri um bankana og kynvitund á Alþingi

Heimir Már Pétursson skrifar
Meint samsæri leiðtoga fyrri ríkisstjórnar og refsiákvæði hegningarlaga varðandi kynvitund voru meðal mála sem rædd voru á Alþingi í dag.

Flest mannlegt kemur til umræðu á Alþingi. Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins vakti m.a. athygli á bréfi Víglundar Þorsteinssonar til þingsins þar sem alvarlegar ásakanir koma fram.

Málið snýst um hvernig síðasta ríkisstjórn stóð að samningum við kröfuhafa um aðkomu þeirra að stofnun nýju bankanna, en Víglundur vitnar í fundargerðir stýrirnefndar stjórnvalda frá 2009 í þeim efnum.

„Þar kemur fram sú skoðun höfundar þessa bréfs að þegar fundargerðirnar séu lesnar í samfellu verði ekki annað ráðið en að frá upphafi hafi ríkisstjórnin haft í huga að afhenda erlendu kröfuhöfunum alla þrjá nýju bankana til að friðþægja þá. Ég tek það fram, virðulegur forseti, að þetta er skoðun höfundar bréfsins,“ sagði Vigdís.

„Trúa menn því hér á Alþingi Íslendinga að á árinu 2009 hafi nokkrir æðstu embættismenn þriggja ráðuneyta, Seðlabankinn, Fjármálaeftirlitið, Ríkisendurskoðun, Bankasýsla ríkisins, fyrirtækið Landslög ... og fleiri myndað eitt víðtækt samsæri gegn hagsmunum landsins? Því er haldið fram í þessari grein,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi fjármálaráðherra.

Og lokaumræða um breytingar á hegningarlögum fór fram á Alþingi í dag þar sem hugtakinu „kynvitund“ er bætt inn í lögin.

Breytingin varðar ákvæði hegningarlaga um refsingar við því að hæðast að, rógbera eða ógna manni eða hópum manna  vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar,  trúarbragða og kynhneigðar nái einnig yfir kynvitund.  En Píratar telja refsiákvæði laganna um allt að tveggja ára fangelsi skerða um of tjáningarfrelsið en breytingartillaga þeirra í málinu var felld.

„Þetta er í raun og veru ákveðinn friðarsamningur sem ég er að reyna að leggja hér á borð, þannig að við getum samþykkt þetta frumvarp, kynvitundarákvæðið kæmi til, orðabreytingin kæmi til en þá væri það líka skýrara að þetta væri skref í átt að meira tjáningarfrelsi líka,“ sagði Helgi Hrafn Gunnarsson þingmaður Pírata.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×