Löwen búið að finna arftaka Landins | Sjöstrand til Melsungen Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. desember 2014 18:00 Appelgren mun verja mark Rhein-Neckar Löwen á næstu leiktíð. vísir/getty
Ljóst er að breytingar verða á markvarðasveit nokkurra liða í þýsku Bundesligunni í handbolta á næstu leiktíð. Sem kunnugt er færir danski landsliðsmarkvörðurinn Niklas Landin sig um set frá Rhein-Neckar Löwen til Kiel, helstu keppinauta Ljónanna í toppbaráttunni. Nicolaj Jacobson, þjálfari Löwen, hefur nú fundið arftaka Landins, en það er sænski markvörðurinn Mikael Appelgren sem hefur varið mark Melsungen frá árinu 2012. Appelgren, sem er 25 ára, skrifaði undir þriggja ára samning við Löwen.Sjöstrand færir sig um set til Melsungen í sumar.vísir/gettyTil að fylla skarð Appelgrens hefur Melsungen samið við annan sænskan markvörð, Johan Sjöstrand, sem kemur frá Þýskalandsmeisturum Kiel. Hinn 27 ára gamli Sjöstrand kom til Kiel frá Aalborg Håndbold í fyrra og hjálpaði liðinu að vinna þýska meistaratitilinn í vor. Hann hefur einnig spilað með IFK Skövde HK í heimalandinu, Flensburg og Barcelona á ferlinum. Þá er Sjöstrand fastamaður í sænska landsliðinu, en hann mun verja mark liðsins á HM í Katar ásamt Mattias Andersson, markverði Flensburg. Sjöstrand skrifaði undir þriggja ára samning við Melsungen sem situr í 6. sæti þýsku deildarinnar. Honum til halds og trausts á næsta tímabili verður Daninn Rene Villadsen sem kemur frá Eisenach sem leikur í næstefstu deild í Þýskalandi.
Handbolti Mest lesið Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Íslenski boltinn KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Íslenski boltinn Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti Valur - KA | Barist í undanúrslitum Handbolti Njarðvík - Grindavík | Verða aftur slagsmál? Körfubolti KR - Stjarnan | Geta Vesturbæingar jafnað metin? Körfubolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Sjö leikmenn flúðu eftir fyrsta landsleikinn í átta ár Fótbolti Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valur - KA | Barist í undanúrslitum Viggó fer til Flensburg Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Gísli með sjö stoðsendingar þegar Magdeburg endurheimti sjö stiga forskot Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Viktor með flottan leik og Börsungar halda áfram að valta yfir deildina Lið Donna byrjar úrslitakeppnina vel Bjarki í úrslitaeinvígið í Ungverjalandi Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Orri öflugur en staða Sporting viðkvæm Elín Klara markahæst og undanúrslit blasa við Naumt forskot hjá Janusi og félögum Uppgjörið: Haukar - Afturelding 32-24 | Hafnfirðingarnir sendu Aftureldingu í sumarfrí Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Fram skildi ÍR eftir og mætir Val í undanúrslitum Stjarnan og Grótta spila upp á sæti í efstu deild Haukar áfram í undanúrslit en Akureyringar í sumarfrí Birgir markahæstur í óvæntum sigri Danir að þvælast fyrir viðræðum HSÍ við Snorra og Arnór? „Styttist í fréttir“ Í afar erfiðum málum eftir stórt tap Stjarnan svaraði fyrir sig og knúði fram oddaleik Elín Klara skoraði þrjú mörk og Sävehof er komið yfir Íslendingaliðin undir í einvígum sínum Skór Rúnars upp í hillu Eduard Koksharov fallinn frá Markahæsti leikmaður HK til Fram Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Sjá meira