Erlent

Gíslataka í Sydney

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Í það minnsta tólf manns er nú haldið í gíslingu af vopnuðum manni á kaffihúsi í Sydney. Þungvopnaðir lögreglumenn hafa umkringt kaffihúsið. Nokkrir af gíslunum hafa verið þvingaðir til að standa fyrir gluggum kaffihússins og halda uppi svörtum fána með áletrun.

Þetta er það sem við vitum um ástandið:

  • Starfsfólk og viðskiptavinir á Lindt Cafe í Martin Place, í Sydney, voru teknir gíslingu um klukkan 9.45 í morgun að áströlskum tíma. Ekki liggur fyrir hversu mörgum gíslum er haldið en fjórir hafa sést.
  • Aðeins hefur sést til eins vopnaðs manns inni á kaffihúsinu.
  • Svörtum fána með hvítri áletrun hefur verið settur upp við glugga kaffihússins. Á honum stendur: Það er enginn guð nema Allah. Múhameð er spámaður hans. Ekki er um að ræða fána hryðjuverkasamtakanna Íslamska ríkið. 
  • Öryggisráð ríkisstjórnar Ástralíu hefur verið kallað til fundar vegna stöðunnar. 
  • Byggingar í nágrenni við kaffihúsið, sem staðsett er í miðju fjármálahverfis borgarinnar, hafa verið rýmdar. Lögregla hefur sagt fólki í nærliggjandi götum að halda sig inni og frá gluggum. Óperuhúsið í Sydney hefur einnig verið rýmt en það er í um kílómeters fjarlægð frá kaffihúsinu. 
  • Forsætisráðherra Ástralíu hefur upplýst að ekki liggur fyrir um hvað rekur gíslatökumanninn áfram.
Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá ABC News í spilaranum hér að neðan. Nánari umfjöllun heldur áfram fyrir neðan spilarann.





Þrír gíslar í glugganum

Árásin átti sér stað kringum klukkan tíu að áströlskum tíma. Í gluggum verslunarinnar má sjá þrjár manneskjur standa með hendur upp að glugganum. Nákvæmur fjöldi gísla hefur ekki fengist staðfestur.



Fáninn sem gíslarnir halda á er svartur með arabísku letri. Á honum stendur: Það er enginn guð nema Allah. Múhameð er spámaður hans.



Búið er að rýma Óperuhúsið í Sydeny sem er í um kílómeters fjarlgæð frá Martin Place, þar sem gíslunum er haldið, sem er í miðju fjármálahverfi borgarinnar.

Vita ekki ástæður gíslatökunnar

„Við vitum ekki enn hvað rekur gerandann áfram,“ sagði Tony Abbott, forsætisráðherra Ástralíu, á blaðamannafundi nú fyrir stundu. Hann sagði þó að vísbendingar bentu til þess að pólitískar ástæður lægju að baki.



„Ástralía er friðsælt opið og gjafmilt samfélag. Ekkert á að breyta því og því hvet ég alla ástrali til að halda áfram sínu daglega lífi,“ sagði hann en bætti við að ef einhver kunni að ahfa upplýsingar skuli sá hinn sami hafa samband við yfirvöld.

Abbott vildi ekki svara spurningum fjölmiðla eftir að hann gaf yfirlýsingu sína. Vísaði hann á lögregluyfirvöld í New South Wales.

Reyna að ná sambandi

Lögregluyfirvöld í New South Wals, ríkinu þar sem Sydney er, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að unnið sé að því að ná sambandi við gíslatökumanninn. 



„Nokkrar skrifstofur í nágrenninu hafa verið rýmdar til öryggis,“ segir í yfirlýsingunni. Þá er fólk í nærliggjandi götum sagt að halda sig innandyra og frá gluggum. 



Lögreglan hvetur fólk til að halda ró sinni. Þá beinir lögreglan þeim tilmælum til fjölmiðla að vera ekki með getgátur uppi um ástandið; það gæti valdið óþarfa ótta.

Styðja aðgerðir gegn ISIS

Ástralía er eitt þeirra landa sem styður aðgerðir Bandaríkjanna gegn Íslamska ríkinu og lengi hefur verið óttast um hryðjuverk í landinu. Líklegt þykir að stuðningsmenn ISIS séu á bak við gíslatökuna. Óstaðfestar fregnir herma að maður hafi hringt í útvarpsstöðvar í Sydney og heimtað að fá að tala við Tony Abbott, forsætisráðherra Ástralíu. Sérstök samningateymi vinna nú að því að ná sambandi við þá sem halda fólkinu föngnu.



Lögreglan í borginni hefur vígbúist og girt nærliggjandi svæði af. Einnig hafa helstu byggingar borgarinnar verið rýmdar.



Helstu lestarstöðvar hafa verið rýmdar en  fregnir herma að gíslatökumaðurinn hafi skilið fjórar sprengjur eftir sig í borginni. Flugumferð var stöðvuð í skamma stund en hefur hafist á nýja leik. Flug mun halda áfram að öllu óbreyttu.

Öryggisráð Ástralíu kallað til

Forsætisráðherra landsins, Tony Abbott, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segir að alríkisstjórnin muni gera allt sem hún getur til að aðstoða stjórnvöld í New South Walse, sem er ríkið þar sem Sydney-borg er, með öllum mögulegum leiðum.



Öryggisráð ríkisstjórnarinnar hefur verið upplýst sérstaklega um ástandið. 



„Það er augljóslega um mjög alvarlegan atburð að ræða en allir Ástralir mega vera fullvissir um að lögreglulið okkar og leyniþjónsta eru vel þjálfaðar og búnar og eru að bregðast við aðstæðum af nákvæmni og fagmennsku,“ segir Abbott meðal annars í yfirlýsingunni. 



Slapp fyrir horn

„Ég kom hérna klukkan korter í tíu og ætlaði að fara inn en þá var læst. Það er mjög skrítið því hér er aldrei læst. Ég kíkti á gluggana og þá sá ég að allir sátu nema einn og allt virtist mjög þvingað,“ segir starfsmaður kaffihússins í samtali við ástralska sjónvarpsstöð. Í dag mætti hann aðeins of seint til vinnu.



„Ég myndi frekar vilja vera þarna inni með þeim heldur en að þurfa að vera hér úti og vita ekki hvað er í gangi.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×