Lífið

Hreinn Skjöldur fer í loftið í kvöld

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Fyrsti þátturinn í nýrri grínþáttaröð Steina Jr. fer í loftið í kvöld. Þættirnir hafa fengið nafnið Hreinn Skjöldur og hefst útsending klukkan 21:15 á Stöð 2.

Steindi var gestur Loga í beinni síðastliðið föstudagskvöld. Þar kom hann meðal annars inn á það að þættirnir yrðu ólíkir öllu öðru sem fólk hefði séð hingað til.

Í spilaranum má sjá eitt atriði úr þáttunum en þar er Steindi að reyna að fá djammþyrsta þjóðhátíðarfara til að ræna Herjólfi og halda til Ibiza.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×