Fótbolti

Einkunnir strákanna: Aron bestur en Elmar slakastur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Tékkar höfðu ástæðu til að fagna í kvöld.
Tékkar höfðu ástæðu til að fagna í kvöld. Vísir/AFP
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var besti leikmaður karlalandsliðs Íslands í 2-1 tapinu gegn Tékkum í undankeppni Evrópumótsins 2016 ytra í kvöld. Einkunnir leikmannanna má sjá hér að neðan.

Ragnar Sigurðsson kom Íslandi yfir á 9. mínútu en Tékkarnir sneru við blaðinu með marki hvoru megin við hálfleikinn. Síðara markið var sjálfsmark Jóns Daða Böðvarssonar sem var sérstaklega slysalegt. Mörkin úr leiknum má sjá hér.

Hannes Þór Halldórsson 4

Gat lítið gert í marki Tékka í síðari hálfleik sem braut loksins ísinn í íslenska markinu. Hannes fékk svo afar klaufalegt sjálfsmark á sig í þeim síðari. Átti svo slæmt úthlaup er Kári bjargaði á línu.

Theodór Elmar Bjarnason 2

Tékkar herjuðu á hægri bakvarðastöðuna hjá Íslandi og Elmar var oft í miklum vandræðum. Gleymdi sér í marki Tékkanna og kom íslenska liðinu oft í stórhættu. Rétt áður en það átti að taka hann af velli bjuggu Tékkar til mark á vinstri vængnum.

Kári Árnason 5

Fékk dæmda á sig aukaspyrnuna sem bjó til mark Tékka, þó það hafi verið fyrir afar litlar sakir. Byrjaði ágætlega en varð mistækur eftir því sem leið á leikinn. Bjargaði þó á línu skömmu eftir sjálfsmarkið.

Ragnar Sigurðsson 6

Skoraði frábært mark sem kom Íslandi yfir. Reyndu eins og aðrir í íslensku vörninni að halda skipulagi en það gekk oft illa gegn spræku tékknesku liði.



Ari Freyr Skúlason 6


Ari komst ágætlega frá sínu í þessum leik. Lokaði sínu svæði vel og átti stóran þátt í að búa til dauðafærið fyrir Kolbein sem var næstum búið að koma Íslandi í 2-0 forystu.



Birkir Bjarnason 5


Gerði vel í að skapa færið fyrir Kolbein en það kom annars lítið úr Birki, enda var miðjuspili Íslands oft haldið niðri.



Gylfi Þór Sigurðsson 5


Erfiður fyrri hálfleikur þar sem Gylfi var í mikilli varnarvinnu og náði sjaldan að skapa usla á vallarhelmingi heimamanna. Negldi boltanum í stöng um miðjan síðari hálfleik en hafði þess fyrir utan því miður hægt um sig.



Aron Einar Gunnarsson 7


Loksins sáum við Aron Einar taka langt innkast í landsleik á ný og það skilaði marki í fyrstu tilraun og stangarskoti Gylfa í því síðara. Fyrirliðinn var gríðarlega duglegur eins og ávallt og komst ágætlega frá gífurlega krefjandi hlutverki á miðjunni.



Emil Hallfreðsson 4


Það lá mikið á hægri varnarvæng íslenska liðsins og Emil hafði nóg að gera. Kom því lítið sem ekkert úr sóknarleiknum hægra megin.



Jón Daði Böðvarsson 4


Virtist gleyma sér í marki Tékkanna undir lok fyrri hálfleiks og skoraði svo bagalegt sjálfsmark. Þetta var erfiður dagur fyrir sóknarmanninn unga.



Kolbeinn Sigþórsson 6


Styrkleiki Kolbeins í loftinu nýttist liðinu vel í fyrri hálfleik. Átti stóran þátt í marki Ragnars og var vinnusamur þess fyrir utan.



Varamenn:




Rúrik Gíslason (62. fyrir Emil) 5


Náði því miður að bæta litlu við sóknarleik Íslands eftir að hafa komið inn á.



Birkir Már Sævarsson (62. fyrir Theodór Elmar) 5


Gerði sitt vel eftir að hann kom inn á, tók engar áhættur og lokaði svæðinu ágætlega.



Jóhann Berg Guðmundsson (77. fyrir Birki Bjarnason)


Var afar nálægt því að skora eftir hornspyrnu seint í leiknum en Petr Cech varði frá honum af stuttu færi. Spilaði of stutt til að fá einkunn.


Tengdar fréttir

Þjóðin svekkt en stolt af strákunum

Sparkspekingar eru sársvekktir með 2-1 tap karlalandsliðs Íslands í Tékklandi í kvöld. EM-draumurinn lifir þó enn góðu lífi.

Umfjöllun: Strákarnir felldir í Tékklandi

Íslenska liðinu var kippt niður á jörðina á ný eftir drauma byrjun í undankeppni Evrópumótsins í 1-2 tapi gegn Tékklandi í Plzen í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×