Innlent

Ætlar að opna kannabisbúð: „Ég veit að þetta verður lögleitt“

Bjarki Ármannsson skrifar
Ásgeir Daði hefur mikla trú á lækningamætti kannabisplöntunnar.
Ásgeir Daði hefur mikla trú á lækningamætti kannabisplöntunnar. Vísir/GVA
Ásgeir Daði Rúnarsson vakti mikla athygli fyrir framkomu sína í sjónvarpsþættinum Brestir síðasta mánudag, en þar greindi hann frá því hvernig hann vinnur og neytir kannabisolíu heima hjá sér í tilraun til þess að sigrast á krabbameini sem hann greindist með árið 2011. Hann segir fimm manns hafa haft samband við hann síðan þátturinn var sýndur til að biðja um kannabisolíu.

„Ég bara gaf þeim númerið mitt, hitti þau og talaði við þau,“ segir Ásgeir. „Fólk er enn að hafa samband en ég bara hef ekki meiri olíu að gefa.“

Þeir sem höfðu samband voru allir ókunnugir Ásgeiri. Einhverjir þeirra voru krabbameinssjúklingar en aðrir haldnir taugasjúkdómum eða einfaldlega með mikla verki.

„Ég er ekki búinn að heyra í öllum en tveir eru búnir að segja mér að þetta hafi hjálpað þeim. Ég heyrði í þeim bara samdægurs, þetta er þannig að þetta virkar strax.“

Ásgeir gefur alltaf olíuna sem hann vinnur og neitar að taka greiðslu fyrir. Hann segist þeirrar skoðunar að fólk eigi ekki að auðgast á heilsutapi annarra.

„En ég hef fengið gjafir í staðinn frá fólki sem ég hef hjálpað,“ segir hann. „Þannig að ef maður gerir gott, þá fær maður gott. Það er bara þannig.“

Ásgeir kom fyrir kannabisplöntu í garðinum heima hjá sér, sem nú er uppurin.Vísir
Stefnir á að opna búð

Í þættinum í síðustu viku greindi Ásgeir frá því að hann hefði gefið rúmlega tuttugu krabbameinssjúklingum kannabisolíu, bæði til að minnka aukaverkanir lyfjameðferðar þeirra og til að reyna að vinna bug á meininu sjálfu. Hann segist hafa fengið mikil viðbrögð frá fólki sem sá hann í þættinum.

„Bara bros úti á götu, fólk stoppar og þakkar fyrir,“ segir hann. „Það finnst öllum fáránlegt að þetta sé bannað.“

Ásgeir er á leið til útlanda í þrjá mánuði en að því loknu segist hann ætla að snúa aftur heim og halda áfram að reyna að hjálpa fólki með kannabislyfi sínu.

„Og þá ætla ég bara að opna búð. Ég stefni á það, einhvern tímann á næsta ári. Ég er að reyna að fá fólk með mér í þetta en það gengur ekkert,“ segir Ásgeir og hlær.

Skiptar skoðanir eru meðal fólks um hvort afglæpavæða, eða hreinlega lögleiða, eigi kannabis. Ásgeir er handviss um að neysla þess verði lögleidd á Íslandi fyrr eða síðar.

„Ég veit að þetta verður lögleitt,“ segir hann. „Ég veit það, það er bara spurning hvað það tekur langan tíma. Það þarf bara að gerast sem fyrst því það eru svo margir sem þurfa hjálp hérna. Og við erum svo lítil þjóð, við erum bara systkyni hérna. Það þurfa allir að hjálpa hvor öðrum.“


Tengdar fréttir

Vill að yfirvöld taki kannabis til skoðunar

Kristín Ingólfsdóttir, lyfjafræðiprófessor og rektor Háskóla Íslands, telur að heilbrigðisyfirvöld eigi að skoða í fullri alvöru að leyfa kannabis í lækningaskyni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×