Innlent

Forsætisráðherra gagnrýndi þingmenn stjórnarandstöðunnar

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands. vísir/valli
„Án sitjandi ríkisstjórnar hefði ekki verið lagt í neinar almennar aðgerðir fyrir þau heimili sem hafa verðtryggð húsnæðislán,“sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í stefnuræðu sinni á Alþingi í kvöld. Hæst bar í stefnuræðu hans aðgerðir ríkisstjórnarinnar um niðurfellingar verðtryggðra húsnæðislána sem rúmlega 69 þúsund heimili sóttu um. Hann sagði það mikið fagnaðarefni en gagnrýndi á sama tíma þingmenn stjórnarandstöðunnar sem farið hafa ófögrum orðum um aðgerðirnar.

„Svo almenn þátttaka hlýtur að vera þingmönnum stjórnarandstöðunnar umhugsunarefni, þegar haft er í huga hversu hatrammlega þeir börðust gegn þessum víðtækustu aðgerðum til hjálpar heimilunum eftir efnahagshrunið, og greiddu meira að segja atkvæði gegn þeim hér á Alþingi,“ sagði Sigmundur.

Hann ræddi einnig fjárlagafrumvarpið sem lagt var fram í gær og sagði breytingar á skattkerfi byggjast á þeim forsendum að auka eigi ráðstöfunartekjur allra, einkum þeirra tekjulægri og stuðla að lækkun á vísitölu verðlags. „Í þessu fellst grundvallarbreyting frá skattahækkunum síðasta kjörtímabils og meirihlutinn er tilbúinn til að gera hverjar þær breytingar á fjárlagafrumvarpinu sem þörf gæti verið á til að verja þessar grunnforsendur,“ útskýrði Sigmundur og bætti við: 

„Og þó okkur greini stundum á um leiðirnar að markmiðinu erum við flest sammála um hvernig samfélag við viljum byggja upp. Á Íslandi eiga fjölskyldurnar að ná endum saman um mánaðamót, öryrkjar eiga að geta lifað mannsæmandi lífi og eldriborgarar eiga að fá notið afraksturs ævistarfsins.“

Þá fór Sigmundur einstaklega fögrum orðum um Ísland, auðlindir landsins, náttúru og samfélagið í heild.

Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá eldhúsdagsumræðum á Alþingi hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×