Lífið

Klára plötu á miðju tónleikaferðalagi

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Zayn Malik, Louis Tomlinson, Niall Horan, Liam Payne og Harry Styles skipa strákasveitina One Direction
Zayn Malik, Louis Tomlinson, Niall Horan, Liam Payne og Harry Styles skipa strákasveitina One Direction Vísir/Getty
Strákasveitin One Direction tilkynntu útgáfudag fjórðu plötu sinnar í gær en hún kemur út þann 17.nóvember næstkomandi.

Platan heitir einfaldlega Four og glöddu þeir stóran aðdáendahóp sinn með því að gefa út eitt lag af nýju plötunni sem heitir Fireproof. Var álagið á síðunni þar sem nálgast mátti lagið svo mikil að hún lá niðri í fimmtán mínútur.

Sveitin er um þessar mundir að klára sitt þriðja tónleikaferðalag um heiminn, en Where We Are túrinn hófst í Suður Ameríku í apríl.

Síðasta plata þeirra Midnight Memories kom út 25.nóvember í fyrra en náði samt sem áður að verða mest selda plata í heimi árið 2013.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×