Rýmingu lokið - TF SIF flaug yfir jökulinn 20. ágúst 2014 06:58 Tækjabúnaðurinn um borð í TF-SIF er afar háþróaður. Þar er meðal annars meðal annars langdræg ratsjá með mikla greiningarhæfni og öflug hitamyndavél. Fréttablaðið/Stefán
Rýmingu af hálendinu norðan Dyngjujökuls, þar sem Almannavarnir lýstu yfir hættuástandi í gær, lauk upp úr miðnætti, en eitthvað á annað hundrað manns voru á svæðinu í gær. Þar á meðal voru þeir sem dvöldu í skálum í Dreka og í Kverkfjöllum. Lögregla naut aðstoðar björgunarsveitarmanna við verkið og að koma upp skiltum um lokanir á vegum. Svæðið verður svo væntanlega kembt betur í dag til þess að ganga úr skugga um hvort fleiri ferðamenn séu þar á ferð. Þetta var gert vegna flóðahættu sem þarna gæti orðið ef eldgos hæfist í Bárðarbungu, en jarðvísindamenn búast þó ekki við hamfaraflóði þótt gos hæfist. Skjálftavirknin í nótt var alveg álíka og undanfarnar nætur, eða um 250 skjálftar frá miðnætti til klukkan sex í morgun, einkum á austara svæðinu, eða þyrpingunni, að sögn Sigþrúðar Ármannsdóttur á Veðurstofunni. Rétt fyrir klukkan fjögur í nótt varð skjálfti upp á þrjú stig suðaustur af Kistufelli, en svo snarpur skjálfti hefur ekki mælst í meira en tvo sólarhringa. Eftirlitsflugvél Gæslunnar, TF SIF flaug yfir Vatnajökul þegar hún kom til landsins í gærkvöldi, og safnaði gögnum með eftirlits- og ratsjárbúnaði vélarinnar.
Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Fleiri fréttir „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Sjá meira