Haukur og Eggert taka yfir Íslensku lögfræðistofuna Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. ágúst 2014 13:57 Eigendur Íslensku lögfræðistofunnar. aðsend mynd
Haukur Örn Birgisson hrl. og Eggert Páll Ólason hdl. hafa tekið yfir rekstur Íslensku lögfræðistofunnar (ÍL). Haukur Örn er hæstaréttarlögmaður og stofnaði ÍL árið 2008 ásamt Einari Huga Bjarnasyni og Jóhanni Hafstein, sem nú hafa yfirgefið eigendahópinn. Eggert Páll er héraðsdómslögmaður og gekk til liðs við lögfræðistofuna sem einn af eigendum árið 2012. Hann starfaði áður sem yfirlögfræðingur skilanefndar Landsbanka Íslands hf. Í tilkynningu frá Íslensku lögfræðistofunni segir að stofan hafi frá stofnun sinnt almennri lögfræðiráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir og erlenda aðila. Vaxandi áhersla hafi verið lögð á ráðgjöf til fyrirtækja og hefur umfang starfseminnar vaxið jafnt og þétt. Starfsstöð Íslensku lögfræðistofunnar verður áfram í Turninum í Kópavogi þar sem fjórir löglærðir fulltrúar starfa ásamt Hauki Erni og Eggerti Páli. „Við hyggjumst byggja á þeim faglega grunni sem til staðar er í þjónustu við viðskiptavini okkar, jafnframt því sem við munum leggja aukna áherslu á ráðgjafarþjónustu við fyrirtæki og fjárfesta. Við höfum átt þeirri velgengni að fagna að umfang starfseminnar hefur vaxið jafnt og þétt allt frá stofnun stofunnar og verkefnin verða sífellt fjölbreyttari. Við erum ánægðir með hvernig til hefur tekist og hlökkum til að halda áfram á sömu braut,“ segir Haukur Örn Birgisson hrl.
Mest lesið Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Viðskipti innlent Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Samstarf Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sjá meira
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent