Umhverfisvænt að borða ekki kjöt Randver Kári Randversson skrifar 23. júlí 2014 14:40 Eftirspurn eftir kjöti fer vaxandi í heiminum. Vísir/Getty Images
Nýlegar rannsóknir benda til þess að besta leiðin fyrir fólk til að draga úr kolefnisfótspori sínu sé að minnka neyslu á kjöti, eða jafnvel hætta henni alveg. Einkum á þetta við um nautakjöt, þar sem nautgriparækt veldur meiri losun gróðurhúsalofttegunda en ræktun á öðrum búfénaði. Á vefnum thinkprogress.org er fjallað um rannsókn sem birtist í fræðiritinu Proceedings of the National Academy of Sciences þar sem fram kemur að losun gróðurhúsalofttegunda frá búfénaði fer vaxandi og má rekja stærstan hluta aukningarinnar til aukinnar nautgriparæktunar en hún veldur um 70% allrar losunar sem rekja má til búfénaðar. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að nautgriparækt krefst 28 sinnum meira landsvæðis og hefur í för með sér 11 sinnum meiri vatnsnotkun heldur en ræktun á öðrum búpeningi s.s. svínum eða kjúklingi, auk þess sem nautgriparækt veldur um fimm sinnum meiri losun gróðurhúsalofttegunda. Einnig er vitnað í ritinu sem birtist í ritinu Climate Change þar sem fram kemur að frá 1961 til 2010 jókst losun gróðurhúsalofttegunda frá nautgripum um 51%. Það skýrist að stórum hluta af aukinni eftirspurn eftir kjöti, sérstaklega í þróunarlöndum. Jafnvel þó svo þróunarríkjum gangi nú betur að minnka losunina frá hverjum nautgrip þá heldur losun gróðurhúsalofttegunda áfram að vaxa í flestum þróunarríkjum vegna aukinnar nautgriparæktunar. Gert er ráð fyrir að eftirspurn eftir kjöti og öðrum landbúnaðarafurðum muni tvöfaldast fyrir árið 2050 en jarðarbúum mun þá hafa fjölgað um tvo milljarða. Því má búast við aukinni losun gróðurhúsalofttegunda samhliða því. Um 15% losunar gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu má rekja til landbúnaðar, og þar af stafar um helmingur af ræktun búpenings. Í þessu sambandi segir prófessor við University of Leeds í samtali við blaðið Guardian að árangursríkasta ráðstöfun sem fólk geti gert til að draga úr kolefnisfótspori sínu sé ekki að losa sig við einkabílinn, heldur að borða minna rautt kjöt.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira