Óraunhæft að senda vopnað herlið til Úkraínu Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 27. júlí 2014 20:53 Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands. vísir/ap
Mark Rutte forsætisráðherra Hollands telur óraunhæft að fá alþjóðlegt herlið til að tryggja vettvanginn við mark malasísku vélarinnar sem fórst hinn sautjánda júlí síðastliðinn og hafa yfirvöld í Hollandi því ákveðið að fresta því að senda sérfræðinga á svæðið. Rutte sagði átök aðskilnaðarsinna og úkraínskra hermanna hindra aðgang að braki vélarinnar og að allra leiða væri leitað til að tryggja vettvanginn. Farið væri yfir vettvanginn daglega og allir möguleikar skoðaðir. Talsmenn eftirlitsstofnunar ÖSE segja að ómögulegt sé að tryggja öryggi sérfræðinganna þar sem átök aðskilnaðarsinna og úkraínskra hermanna fara harðnandi. Rannsakendur hafa átt í miklum erfiðleikum með að nálgast brakið en aðskilnaðarsinnar ráða lögum og lofum á svæðinu. Svo virðist sem að samkomulag aðskilnaðarsinna og yfirvalda í Úkraínu um að auðvelda rannsókn á harmleiknum hafi skilað litlum árangri. Stjórn Barack Obama Bandaríkjaforseta fullyrðir að aðskilnaðarsinnar hafi skotið flugvélina niður en mögulegt sé að um mistök hafi verið að ræða. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, þvertekur fyrir þetta og segir að úkraínski herinn hafi verið að verki. Alls létust 298 manns þegar farþegaflugvél Malaysia airlines var grandað fyrir tíu dögum síðan. Þar af voru 193 hollenskir ríkisborgarar.
Mest lesið Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Innlent Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Innlent „Svaraðu spurningunni“ Innlent Marius látinn laus Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Enn í lífshættulegu ástandi Innlent „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira