Innrás Ísraelshers hafin á Gaza Randver Kári Randversson skrifar 17. júlí 2014 23:41 Vísir/AFP
Ísraelsmenn hafa hafið innrás á Gaza-ströndina og sent her þeirra fram af landi, sjó og úr lofti. Fimm klukkustunda vopnahlé var gert í dag, en um leið og það rann út brutust út bardagar milli Ísraelshers og Hamas. Á vef BBC kemur fram að Ísraelsher segi innrásina vera svar við ítrekuðum flugskeytaárásum Hamas á Ísrael síðustu 10 daga og hún sé gerð til að tryggja öryggi Ísraelsmanna. Ísraelskar herþotur hafa í kvöld varpað sprengjum á Gaza ströndina og skriðdrekar hafa verið sendir inn fyrir landamærin inn á norðvesturhluta Gaza-strandarinnar. Eitt helsta markmið innrásarinnar er að eyðileggja jarðgöng sem liðsmenn Hamas hafa notað til að komast inn í Ísrael. Frá 8. júlí hefur Ísraelshers framkvæmt um 1960 árásir á Gaza, og Hamas-liðar hafa skotið um 1380 flugskeytum á Ísrael, sem flestum hefur verið grandað af loftvarnakerfi Ísraelsmanna. Sameinuðu þjóðirnar telja að um 1370 heimili á Gaza-ströndinni hafi verið eyðilögð og hafi um 18000 manns misst heimili sitt af þeim sökum. Síðasta stóra innrás Ísraelsmanna á Gaza var beggja vegna áramótanna 2008 og 2009. Á þriggja vikna tímabili er talið að um 1400 Palestínumenn hafi látið lífið og 13 Ísraelar að því er Reuters greinir frá.
Gasa Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira