Formúla 1

Bílskúrinn: Kristjáns-horn og klöguskjóður

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton fagnaði gríðarlega enda sætur sigur á heimavelli.
Hamilton fagnaði gríðarlega enda sætur sigur á heimavelli. Vísir/Getty
Eftir gríðarlega spennandi breskan kappakstur þar sem heimamaðurinn Lewis Hamilton hjá Mercedes vann er kominn tími til að skoða Bílskúrinn, léttu hliðina á Formúlu 1 á Vísi.

Felipe Massa eftir samstuðið við RaikkonenVísir/Getty
Var Kimi Raikkonen í rétti?

Strax á fyrsta hring lenti Kimi Raikkonen í því að fara út úr braut og inn á hana aftur. Raikkonen missti þá stjórn á bíl sínum. Dæld var í grasinu sem Raikkonen ætlaði að aka yfir til að komast inn á brautina. Þá skoppaði bíllinn og Raikkonen missti alla stjórn og lenti á varnarvegg af miklum þunga (47G).

Niki Lauda, fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 og ráðgjafi Mercedes liðsins hefur sagt að Raikkonen hefði átt að hægja á sér til að komast örugglega inn á brautina.

Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingur Stöðvar 2 telur að Raikkonen hafi reiknað með öllu, nema dældinni í grasinu.

„Auðvitað hefði verið gáfulegra að bíða aðeins en allir kappakstursmenn hefðu gert það sama, hann er í raun bara óheppinn að það er hola í grasinu. Hann ætti ekki að fá neina refsingu,“ segir Kristján Einar.

Vettel og Alonso börðust af hörku á Silverstone og kvörtuðu sáran yfir hegðun hvors annars.Vísir/Getty
Epísk barátta Vettel og Alonso

Í nokkra hringi glímdu Sebastian Vettel á Red Bull og Fernando Alonso á Ferrari um sæti.

Baráttan var epísk og aksturinn afbragðs góður á köflum. Athyglisvert var að heyra ökumenn kvarta á víxl yfir akstri hins. Þeir virtust telja nauðsynlegt að klaga hvorn annan ef eitthvað kom uppá.

Alonso vildi meina að Vettel hefði farið með öll fjögur dekkin út fyrir brautarmörk til að koma bilinu á milli þeirra niður fyrir eina sekúndu. Þá gat Vettel notað DRS kerfið sem opnar afturvænginn til að auðvelda framúrakstur.

„Varðandi DRS þá skil ég það ekki því maður getur einungis notað það ef tölvukerfið leyfir og þá innan tiltekinna marka,“ sagði Vettel.

Vettel virðist misskilja kvartanir Alosno. Alonso var að benda á að Vette hefði ekki komist í DRS færi ef hann hefði ekki ekið út fyrir brautarmörk.

Vettel kvartaði yfir því að Alonso gæfi honum ekki nægjanlegt pláss á brautinni. Vettel hefur gjarnan notað frasan „Sáuð þið hvað hann gerði,“ þegar svona lagað kemur uppá. Hann sparaði ekki notkun hans á sunnudaginn.

Bottas barðist eins og ljón og uppskar vel.Vísir/Getty
Velgengni Williams

Eftir gott gengi í Austurríki var ekki laust við vonbrigði hjá Williams liðinu eftir tímatökuna á Silverstone brautinni. Valtteri Bottas, hetja liðsins frá Austurríki náði einungis 17. sæti í tímatökunni. Liðsfélagi hans Felipe Massa varð 18.

Massa ræsti af stað í sinn 200. kappakstur en komst ekki langt eftir samstuð við Raikkonen á fyrsta hring.

Valtteri Bottas átti hins vegar akstur dagsins og endaði í öðru sæti. Hann sýndi afburðar takta á köflum og landaði verðskulduðu verðlaunasæti. Hann eygir nú keppnissigur á næstunni.

Hamilton var kampakátur með keppnina. Hann bætti upp fyrir stór mistök í tímatökunni.Vísir/Getty
Mistök Hamilton

Hamilton gerðist sekur um stór mistök í tímatökunni á laugardag. Hann hætti við síðustu tilraun sína til að ná ráspól. Rosberg tók ráspól og Hamilton ræsti 6. af stað.

Brautin var að þorna og blotna til skiptis alla tímatökuna og aðstæður voru einkennilegar á síðustu sekúndum hennar. Brautin var þá blaut allstaðar nema á síðasta hluta hennar. Síðasti hlutinn dugði til að vinna upp tapaðan tíma. Hamilton lét ekki reyna á aðstæður og sat því eftir meðan aðrir létu slag standa.

Hamilton hætti í staðinn við og kom inn á þjónustusvæðið. Hann sagði strax eftir tímatökuna „Þetta voru mín mistök.“ Eins bað hann lið sitt afsökunnar á þessu eftir að hafa unnið keppnina.

Kristján Einar spáir því að þjóðverjarnir verði framarlega í baráttunni í Þýskalandi.Vísir/Getty
Kristjáns - hornið

Kristján Einar Kristjánsson einn helsti sérfræðingur landsins í Formúlu 1 fer yfir framhaldið.

„Ég myndi skjóta á að Rosberg vinni, enda hálfpartinn á heimavelli og Williams verði sterkir. Það er alltaf möguleiki að Red Bull komi sér í baráttuna. Vettel er náttúrulega á heimavelli en hann á ekki séns á að vinna,“ segir Kristján Einar þegar hann er spurður hvernig hann sjái keppnina í Þýskalandi fyrir sér.

„Ég spái að Renault muni ná að koma með alvöru uppfærlur eftir sumarfrí. Þá er Red Bull komið miklu nær. Ég hugsa þó að slagurinn endi á milli Hamilton og Rosberg,“ segir Kristján Einar um áframhaldandi baráttu á tímabilinu.


Tengdar fréttir

Rosberg er ekki Þjóðverji

Bretinn Lewis Hamilton er heldur betur búinn að kynda bálið fyrir þýska kappaksturinn í Formúlu 1.

Mercedesmenn fljótastir á föstudagsæfingum

Nico Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Silverstone brautinni á tímanum 1:35,424. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð fljótastur á seinni æfingunni á tímanum 1:34,508.

Lewis Hamilton vann á heimavelli

Lewis Hamilton á Mercedes. vann breska kappaksturinn. Eftir gríðarlega dramatíska keppni. Valtteri Bottas á Williams var annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Samantekt frá breska kappakstrinum

Stöð 2 Sport sýndi beint frá Formúlu 1 kappakstrinum í Bretlandi í gær og eftir kappaksturinn var farið yfir það helsta sem gerðist í keppninni í dag. Nú er hægt að sjá Samantektarþáttinn hér inn á Vísi.

Rosberg á ráspól á Silverstone

Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í breska kappakstrinum, Sebastian Vettel á Red Bull varð annar og Jenson Button á McLaren varð þriðji. Tímatakan einkenndist af skúrum á köflum og miklum sviftingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×