Formúla 1

Lewis Hamilton vann á heimavelli

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Hamilton vann á heimavelli.
Hamilton vann á heimavelli. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes. vann breska kappaksturinn. Eftir gríðarlega dramatíska keppni. Valtteri Bottas á Williams var annar og Daniel Ricciardo á Red Bull varð þriðji.

Kimi Raikkonen ók á Felipe Massa á fyrsta hring og báðir duttu út keppni. Þessi árekstur gerði það að verkum að keppnin var stöðvuð og endurræst eftir töluverða töf.

Keppnin hófst þá aftur á eftir öryggisbílnum.

Nico Rosberg, tilkynnti gírkasavandræði á 29. hring. Hann missti forystuna til liðsfélaga síns, Lewis Hamilton. Rosberg datt úr keppni í fyrsta sinn á tímabilinu.

„Þetta gerðist hægt og rólega, byrjaði á hring 20. Ég reyndi að bjarga gírkassanum með því að breyta aksturslaginu. En það dugði ekki til,“ sagði Rosberg eftir að hann hætti keppni.

Eftir rosaleg baráttu tókst Sebastian Vettel að komast fram úr Fernando Alonso. Þeir voru búnir að berjast í þó nokkurn tíma.

Bottas átti frábæran dag í dag eftir afleidda tímatöku í gær.Vísir/Getty
Hamilton vann síðast á Silverstone brautinni 6. júlí 2008. Það var síðasta skipti sem breskur ökumaður vann Formúlu 1 keppni á Silverstone brautinni.

Valtteri Bottas átti einn besta akstur dagsins en hann ræsti 17. en endaði í 2. sæti. Hann náði öðru verðlaunasæti sínu í röð, eftir a hafa náð sínu fyrsta í síðustu keppni.

„Auðvitað vill maður aldrei að liðsfélagi falli úr keppni en ég þurfti virkilega á þessu að halda,“ sagði Hamilton.

„Markmiðið var að enda eins ofarlega og hægt var, liðið hefur verið frábært og bíllinn er góður,“ sagði Bottas.

„Við rétt náðum að halda Jenson fyrir aftan okkur, einn hringur í viðbót hefði gert þetta virkilega erfitt,“ sagði Ricciardo.

Niðurstaða keppninnar varð:

1.Lewis Hamilton - Mercedes - 25 stig

2.Valtteri Bottas - Williams - 18 stig

3.Daniel Ricciardo - Red Bull - 15 stig

4.Jenson Button - McLaren - 12 stig

5.Sebastian Vettel - Red Bull - 10 stig

6.Fernando Alonso - Ferrari - 8 stig

7.Kevin Magnussen - McLaren - 6 stig

8.Nico Hulkenberg - Force India - 4 stig

9.Daniil Kvyat - Toro Rosso - 2 stig

10.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso - 1 stig

11.Sergio Perez - Force India

12.Romain Grosjean - Lotus

13.Adrian Sutil - Sauber

14.Jules Bianchi - Marussia

15.Kamui Kobayashi - Caterham

16.Max Chilton - Marussia

Þessir duttu úr keppni:

Pastor Maldonado - Lotus

Esteban Gutierrez - Sauber

Marcus Ericsson - Caterham

Felipe Massa - Williams

Nico Rosberg - Mercedes

Kimi Raikkonen - Ferrari




Tengdar fréttir

Raikkonen ætlar að hætta eftir 2015

Kimi Raikkonen, ökumaður Ferrari hyggst hætta í Formúlu 1 eftir næsta keppnistímabil. Þegar gildandi samningur hans við Ferrari tekur enda.

Mercedesmenn fljótastir á föstudagsæfingum

Nico Rosberg varð fljótastur á fyrri æfingu dagsins á Silverstone brautinni á tímanum 1:35,424. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð fljótastur á seinni æfingunni á tímanum 1:34,508.

Rosberg á ráspól á Silverstone

Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í breska kappakstrinum, Sebastian Vettel á Red Bull varð annar og Jenson Button á McLaren varð þriðji. Tímatakan einkenndist af skúrum á köflum og miklum sviftingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×