Reykjavík hápunkturinn á ferli Ronalds Reagans Kristján Már Unnarsson skrifar 16. júní 2014 19:30
Leiðtogafundurinn í Reykjavík árið 1986 var hápunkturinn á ferli Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta og þar lauk kalda stríðinu. Þetta segir einn helsti samstarfsmaður Reagans í nýútkominni bók sem byggir á trúnaðarskjölum sem nýbúið er að létta leynd af.Fyrstu viðbrögðin eftir fundinn í Höfða fyrir 28 árum voru vonbrigði, hann virtist hafa misheppnast. Næstu mánuðina á eftir fóru menn hægt og rólega að átta sig á að þar hafði meira gerst en virtist í fyrstu, og eftir því sem árin hafa liðið hefur styrkst sú mynd að fundurinn hafi verið einhver stærsti viðburður í stjórnmálasögu heims á síðari hluta tuttugustu aldar.„Reagan í Reykjavík” heitir nýjasta bókin, með undirtitlinum: „48 stundir sem luku kalda stríðinu”, en hún kom út vestanhafs í síðasta mánuði. Höfundurinn er Ken Adelman sem var yfirmaður vopnabúrs Bandaríkjanna og einn af ráðgjöfum Reagans á fundinum og hafði áður verið sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum. Fox-fréttastofan, sem mikið heldur upp á Ronald Reagan, er meðal þeirra sem fjallað hafa um bókina og í grein undir fyrirsögninni „Hvað gerði 1986 fundinn svo sérstakan?” segir höfundurinn að Reykjavíkurfundurinn hafi verið hápunkturinn á ferli Reagans, „his finest hour". Þegar menn skoði þau trúnaðarskjöl sem nýlega sé búið að létta leynd af sjáist að söguleg tímamót urðu í Reykjavík. Sjónum er meðal annars beint að því nána persónulega sambandi sem náðist milli Reagans og Gorbatsjofs Sovétleiðtoga, sem var lykillinn að víðtækum afleiðingum fundarins. Viðbrögðin fyrst á eftir voru þó afar misjöfn og vitnað er í Richard Nixon sem sagði að á eftir Jalta-fundinum í lok síðari heimstyrjaldar hefði enginn leiðtogafundur ógnað vestrænum hagsmunum jafn mikið og þessir tveir sólarhringar í Reykjavík. Þá er vitnað í George Shultz utanríkisráðherra sem spurði Gorbatsjof löngu síðar hver vendipunkturinn hefði verið fyrir lok kaldastríðins. Án þess að hika svaraði Gorbatsjof: Reykjavík.
Tengdar fréttir Við sýndum hugrekki, visku og ábyrgð Mikhail Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, kom til landsins í dag. Á morgun, 12 október, eru 20 ár síðan leiðtogafundur hans og Ronald Reagans, fyrrum Bandaríkjaforseta, var haldinn í Höfða. Einkavél Björgólfs Thórs Björgólfssonar forstjóra Novators lenti með Gorbosjov á Reykjavíkurflugvelli um klukkan 16:00. Gorbasjov sagði meðal annars í viðtali sem Þórir Guðmundsson, varafréttastjóri NFS, átti við hann í dag og flutt verður ás NFS í kvöld, að leiðtogafundurinn 12. október 1986 í Reykjavík hafi markað þáttaskil í viðræðum um takmörkun kjarnorkuvopna. 11. október 2006 18:16 Reykjavík verður kvikmynd um sigur mannsandans Kvikmyndin Reykjavík verður um sigur mannsandans að sögn Mike Newell, sem mun leikstýra þessari stórmynd sem draumasmiðjan ætlar að gera um leiðtogafundinn heimsfræga sem átti sér stað hér á landi árið 1986. 23. nóvember 2012 21:01 Skúrkurinn úr Inglourious Basterds leikur Gorbachev í Reykjavík Christoph Waltz, sem fékk óskarsverðlunin fyrir að leika nasistaforingja í myndinni Inglourious Basterds mun leika Mikhail Gorbachev, fyrrverandi forseta Sovétríkjanna, í myndinni Reykjavík. Það er Mike Newell sem leikstýrir myndinni, en eins og áður hefur komið fram mun Michael Douglas leika sjálfan Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Eins og fram kemur á vefnum Variety fjallar myndin um leiðtogafundinn í Höfða, sem haldinn var árið 1986 og er oft sagður hafa markað upphafið af endalokum Kalda stríðsins. 15. október 2012 15:24 Kvikmynd um leiðtogafundinn í Höfða í undirbúningi Framleiðendur í Hollywood eru að undirbúa kvikmynd um leiðtogafundinn í Höfða. Hugmyndir eru um að Warren Beatty leiki Ronald Reagan og Anthony Hopkins leiki Mikael Gorbatsjov. Fulltrúar Clints Eastwoods og breska leikstjórans Ridleys Scott hafa fundað með fulltrúum Reykjavíkurborgar um málið. 31. ágúst 2007 19:20 Hollywood-stjörnur í mynd um leiðtogafundinn Kvikmyndin Reykjavík, sem fjallar um leiðtogafundinn í Höfða árið 1986, er í undirbúningi í Hollywood. Hver mun leika hvern í myndinni? 27. september 2012 14:00 Baltasar leikstýrir hugsanlega Douglas og Waltz Baltasar Kormákur mun hugsanlega leikstýra myndinni Reykjavík en þetta kemur fram í bandarískum miðlum í dag. 14. maí 2014 09:15 Michael Douglas kemur líklega til Íslands Viðræður standa nú yfir við stórleikarann Michael Douglas um að hann taki að sér að leika Ronald Reagan í nýrri kvikmynd sem mun fjalla um leiðtogafund Reagans og Gorbachev í Reykjavík árið 1986. 30. ágúst 2012 09:38 Tökum á „Reykjavik“ frestað Kvikmynd um sögulegan leiðtogafund fer í tökur á næsta ári. 5. apríl 2013 16:28 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira
Við sýndum hugrekki, visku og ábyrgð Mikhail Gorbatsjov, fyrrum leiðtogi Sovétríkjanna, kom til landsins í dag. Á morgun, 12 október, eru 20 ár síðan leiðtogafundur hans og Ronald Reagans, fyrrum Bandaríkjaforseta, var haldinn í Höfða. Einkavél Björgólfs Thórs Björgólfssonar forstjóra Novators lenti með Gorbosjov á Reykjavíkurflugvelli um klukkan 16:00. Gorbasjov sagði meðal annars í viðtali sem Þórir Guðmundsson, varafréttastjóri NFS, átti við hann í dag og flutt verður ás NFS í kvöld, að leiðtogafundurinn 12. október 1986 í Reykjavík hafi markað þáttaskil í viðræðum um takmörkun kjarnorkuvopna. 11. október 2006 18:16
Reykjavík verður kvikmynd um sigur mannsandans Kvikmyndin Reykjavík verður um sigur mannsandans að sögn Mike Newell, sem mun leikstýra þessari stórmynd sem draumasmiðjan ætlar að gera um leiðtogafundinn heimsfræga sem átti sér stað hér á landi árið 1986. 23. nóvember 2012 21:01
Skúrkurinn úr Inglourious Basterds leikur Gorbachev í Reykjavík Christoph Waltz, sem fékk óskarsverðlunin fyrir að leika nasistaforingja í myndinni Inglourious Basterds mun leika Mikhail Gorbachev, fyrrverandi forseta Sovétríkjanna, í myndinni Reykjavík. Það er Mike Newell sem leikstýrir myndinni, en eins og áður hefur komið fram mun Michael Douglas leika sjálfan Ronald Reagan, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Eins og fram kemur á vefnum Variety fjallar myndin um leiðtogafundinn í Höfða, sem haldinn var árið 1986 og er oft sagður hafa markað upphafið af endalokum Kalda stríðsins. 15. október 2012 15:24
Kvikmynd um leiðtogafundinn í Höfða í undirbúningi Framleiðendur í Hollywood eru að undirbúa kvikmynd um leiðtogafundinn í Höfða. Hugmyndir eru um að Warren Beatty leiki Ronald Reagan og Anthony Hopkins leiki Mikael Gorbatsjov. Fulltrúar Clints Eastwoods og breska leikstjórans Ridleys Scott hafa fundað með fulltrúum Reykjavíkurborgar um málið. 31. ágúst 2007 19:20
Hollywood-stjörnur í mynd um leiðtogafundinn Kvikmyndin Reykjavík, sem fjallar um leiðtogafundinn í Höfða árið 1986, er í undirbúningi í Hollywood. Hver mun leika hvern í myndinni? 27. september 2012 14:00
Baltasar leikstýrir hugsanlega Douglas og Waltz Baltasar Kormákur mun hugsanlega leikstýra myndinni Reykjavík en þetta kemur fram í bandarískum miðlum í dag. 14. maí 2014 09:15
Michael Douglas kemur líklega til Íslands Viðræður standa nú yfir við stórleikarann Michael Douglas um að hann taki að sér að leika Ronald Reagan í nýrri kvikmynd sem mun fjalla um leiðtogafund Reagans og Gorbachev í Reykjavík árið 1986. 30. ágúst 2012 09:38
Tökum á „Reykjavik“ frestað Kvikmynd um sögulegan leiðtogafund fer í tökur á næsta ári. 5. apríl 2013 16:28