Innlent

Verkfall flugvirkja: „Erum að tryggja almannahagsmuni“

Linda Blöndal skrifar
Hanna Birna neitar því að um þvingunaraðgerðir sé að ræða.
Hanna Birna neitar því að um þvingunaraðgerðir sé að ræða.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir að með boðaðari lagasetningu á fyrirhuga verkfall flugvirkja Icelandair séu stjórnvöld sé ekki að taka neina afstöðu til deilunnar heldur að tryggja almannahagsmuni.

Stjórnvöld séu ekki að  láta undan þrýstingi frá Samtökum atvinnulífsins. Staðan sé óviðunandi og það séu allir sammála um.  Deilan vegi að hagsmunum Íslands og einstaklinga og fyrirtækja og við því verði að bregðast.

Endurskoða þarf löggjöf 

„Þar sem þetta hefur komið fyrir ítrekað núna, að við höfum þurft að blanda okkur í kjaradeilur einstakra stétta við einstakt fyrirtæki, það er óviðunandi staða.

Við þurfum að fara yfirlöggjöfina, fara yfir rammann, heimildir ríkissáttasemjara og velta því fyrir okkur hvernig við getum komið í veg fyrir að svona gerist ekki trekk í trekk“, sagði Hanna Birna í fréttum Stöðvar tvö í kvöld.

Alþingi greiði atkvæði á morgun

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að styðja frumvarp innanríkisráðherra um að setja lög á verkfall flugvirkja, verði ekki samið fyrir fimmtudaginn þegar ótímabundið verkfall er boðað. Alþingi kemur saman klukkan þrjú á morgun verði ekki samið áður.

Hanna Birna segir að allir flokkar á þingi séu upplýstir um gang mála en segist ekki geta fullyrt fyrir þá alla hvort þeir styðji lögbann á verkfallið. „Ég ætla ekki að tjá mig um afstöðu annarra en ríkisstjórnarinnar“, segir hún en atkvæðagreiðsla færi fram á þingi á morgun um frumvarp hennar.

Verður að bregðast við núna

Hanna Birna segir að ekki sé verið að setja þrýsting á deilendur með lagasetningu en reglur segja að boða verði til þings með sólarhrings fyrirvara.

„Ríkisstjórnin verður að kalla til þings núna svo við náum að bregðast við í tíma. Stjórnarandstaðan tekur svo bara sína afstöðu“, segir hún og að þetta kalli á breytta tíma.

„Ég tel óviðunandi að löggjafinn sé ítrekað að hafa afskipti af samningum á frjálsum markaði en þegar svo ríkir hagsmunir eru undir ber okkur skylda til að gera það“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×