Innlent

Þjóðskrá skoðar lögheimilisskráningu Sveinbjargar

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm/Valgarður
Þjóðskrá athugar nú, eftir ábendingu frá yfirkjörstjórn Reykjavíkur, hvort Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavík, skuli áfram skráð með lögheimili í Reykjavík.

Yfirkjörstjórn Reykjavíkur hafði til skoðunar, á fundi stjórnarinnar þann 11. maí, hvort Sveinbjörg uppfyllti kjörgengisskilyrði í Reykjavík eftir að haft var eftir henni í fjölmiðlum að hún byggi í Kópavogi, en hún er með skráð lögheimili í Reykjavík, þar sem hún er í framboði.

Yfirkjörstjórn kallaði Sveinbjörgu á sinn fund ásamt Þorsteini Magnússyni, umboðsmanni lista Framsóknar og flugvallarvina. Á fundinum staðfesti hún að rétt hefði verið haft eftir henni í fjölmiðlum.

Þar sem ákvörðun um réttmæti lögheimilisskráningar frambjóðenda heyrir ekki að lögum undir yfirkjörstjórn, var kjörgengi Sveinbjargar úrskurðað gilt.

Þó sendi yfirkjörstjórn ábendingu til Þjóðskrár Íslands, með vísan til góðra stjórnsýsluhátta. Þjóðskrá hefur málið nú til skoðunar.

Margrét Hauksdóttir, forstjóri Þjóðskrár Íslands segir að Þjóðskrá hafi borist þessi ábending. „Það er alvanalegt að við fáum ábendingar um að lögheimili einstaklings sé ekki eins og það sé skráð. Þá fer það í hefðbundna málsmeðferð og það er eins með þessa ábendingu og allar aðrar,“ segir Margrét.

Hefðbundin málsmeðferð slíkra ábendinga felur í sér að viðkomandi er kynnt ábendingin og beðinn um upplýsingar og gögn sem styðji að lögheimili sé þar sem hann kveðst eiga heima. Þá getur einnig farið fram sjálfstæð gagnöflun Þjóðskrár.

Að því loknu verður endanleg ákvörðun tekin um hvort lögheimilisskráning skuli vera óbreytt, eða viðkomandi skuli skráður til lögheimilis annarsstaðar, ef gögnin styðji það.

Í lögum um lögheimili segir: „Lögheimili manns er sá staður þar sem hann hefur fasta búsetu.

Maður telst hafa fasta búsetu á þeim stað þar sem hann hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða, veikinda eða annarra hliðstæðra atvika.

Dvöl í gistihúsi, fangelsi, vinnuhæli, sjúkrahúsi, athvarfi, heimavistarskóla, verbúð, vinnubúðum eða öðru húsnæði, sem jafna má til þessa, er ekki ígildi fastrar búsetu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×