Þrettán íslensk mörk og Kiel í úrslit Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 31. maí 2014 15:02 Aron skoraði mikið og lék góða vörn gegn Laszlo Nagy vísir/getty
Kiel er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta í þriðja sinn á fimm árum eftir 29-26 sigur á ungversku meisturunum í Veszprém í dag. Leikurinn var jafn og spennandi allan leikinn en Kiel var sterkara í seinni hálfleik eftir mjög jafnan fyrri hálfleik. Það var mikill hraði í leiknum enda ekki við öðru að búast. Bæði lið leika öfluga vörn og keyrðu góð hraðaupphlaup við hvert tækifæri. Sviptingarnar voru fyrir vikið miklar í leiknum og þriggja marka sveiflur sáust ítrekað á skömmum tíma en alltaf var spenna í leiknum. Ungverjarnir voru lengst af yfir í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var þó jöfn 13-13. Kiel byrjaði betur í seinni hálfleik og náði frumkvæðinu í leiknum. Innkoma Svíans Andreas Palicka í mark Kiel var frábær og þegar Renato Sulic fékk beint rautt spjald þegar rúmlega stundarfjórðungur var eftir af leiknum var verkefnið orðið erfitt fyrir Veszprém þó aðeins hafi munaði marki á liðunum. Kiel náði fjögurra marka forystu þegar rúmlega sjö mínútur voru eftir af leiknum. Veszprém minnkaði muninn aðeins í þrjú mörk úr því og því vann Kiel að lokum næsta öruggan sigur. Kiel hefur tvisvar unnið keppnina undir stjórn Alfreðs Gíslasonar og er nú komið í þriðja sinn í úrslit undir hans stjórn. Íslendingarnir í liðinu áttu báðir mjög góðan leik. Aron Pálmarsson var markahæstur með 7 mörk og Guðjón Valur Sigurðsson kom næstur með 6. Filip Jicha skoraði 4 mörk fyrir Kiel en Rene Toft Hansen fór fyrir liðinu í vörninni og var frábær. Hjá Veszprém var Momir Ilic markahæstur með 6 mörk og Cristian Ugalde skoraði 5.
Handbolti Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Sjá meira