Myrt á 7 ára afmælisdegi sonarins 11. maí 2014 16:19
Á heimili fjölskyldu einnar á Lyngheiði í Kópavogi var allt kapp lagt á að 7 ára afmæli Rafns Öldusonar yrði sem eftirminnilegast í lok fyrstu vinnuviku septembermánaðar árið 1988. Alda Rafnsdóttir, móðir Rafns litla, sá um undirbúninginn en henni auðnaðist ekki að upplifa afmælisveisluna. Sársaukinn sem fylgt hefur morðmáli Öldu hefur verið þyngri en tárum taki fyrir fjölskylduna. Saga Öldu Rafnsdóttur hefur ekki verið sögð í fjölmiðlum áður. Fyrir því er góð ástæða. Sársaukinn sem fylgt hefur morðmáli hennar og eftirmál hafa verið þyngri en tárum taki fyrir fjölskyldu hennar og vini. „Hún var jákvæð og hún var ofsalega orkurík. Hún kom alltaf með gleði, hún var ein af þessum manneskjum sem lýstu upp heimilið.“ Þetta segir móðir Öldu, Karen Gestsdóttir, sem ræðir átakanlega sögu fjölskyldunnar í þættinum Íslenskir ástríðuglæpir á Stöð 2 á sunnudagskvöld.Örlagarík ákvörðun Alda tók örlagaríka ákvörðun að kvöldi föstudagsins 2. september 1988. Þá hélt hún ásamt kunningjakonu sinni á dansleik. Það reyndist síðasti dansleikur Öldu Rafnsdóttur. Fyrir utan skemmtistaðinn hittu þær vinkonurnar mann og var ákveðið að deila leigubíl að lokinni skemmtun kvöldsins. Skömmu síðar var Alda látin. Myrt á sjöunda afmælisdegi sonar síns sem var staddur í sama herbergi og atburðurinn óhugnanlegi átti sér stað í.Tóku drenginn að sér Móðir Öldu og faðir tóku drenginn í sína umsjá í kjölfar atburðarins. „Ég vissi ekki meðan ég gekk í gegnum þetta að ég væri svona brotin. Þegar Alda deyr þá lifi ég fyrir drenginn. Hann var bara markmiðið. Líf okkar byggðist upp á því að gefa honum eitthvað til að geta lifað með.“14 ára fangelsi Banamaður Öldu hlaut 14 ára fangelsisdóm fyrir tilræðið. Hver harmleikurinn á fætur öðrum hefur dunið yfir fjölskylduna á undanförnum árum og Karen segir undanfarin ár hafa verið erfið. Fleiri dauðsföll riðu yfir í kjölfar andláts Öldu. „Maður hefur tvo möguleika. Það er að lifa með reiðinni og geyma hana, eða verða vitlaus. Ég valdi fyrri kostinn,“ segir Karen. Rætt verður við hana, lögreglumenn sem önnuðust rannsókn málsins og föður Öldu í Íslenskum ástríðuglæpum á Stöð 2 í kvöld klukkan 20:50.
Íslenskir ástríðuglæpir Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Sjá meira