Sport

McGrady reynir fyrir sér í hafnabolta

McGrady í fyrsta leiknum með Skeeters.
McGrady í fyrsta leiknum með Skeeters. vísir/getty
Tracy McGrady var tvisvar sinnum stigakóngur í NBA-deildinni og spilaði sjö stjörnuleiki. Hann reynir nú fyrir sér á öðrum vettvangi.

Þó svo McGrady sé aðeins 34 ára gamall þá var lítið að gerast í körfuboltanum síðustu árin. Hann lagði svo skóna á hilluna og eltir nú gamlan draum.

Hann er byrjaður að spila hafnabolta og ætlar að reyna að komast í MLB-deildina. McGrady spilaði hafnabolta í menntaskóla og þótti vera öflugur kastari.

McGrady er að sýna sig þessa dagana hjá liði Sugar Land Skeeters en það er lið sem spilar í lítilli deild í Houston.

Ekki gekk nógu vel hjá McGrady í fyrsta leiknum en hann lofar því að leikur hans eigi eftir að batna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×