Innlent

Vinnustöðvun hjá sjúkraliðum - Hafa boðað allsherjarverkfall 22. maí

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sjúkraliðar á elliheimilinu Grund leggja niður störf í dag.
Sjúkraliðar á elliheimilinu Grund leggja niður störf í dag. visir/heiða
Verkfall hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu stendur yfir í átta klukkustundir í dag, frá 08:00 – 16:00.

Verkfallið nær til þeirra sem starfa hjá stofnununum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Það eru um 300 sjúkraliðar í Sjúkraliðafélagi Íslands og 150 starfsmenn hjá SFR.

Vinnustöðvun var hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR á mánudaginn frá 08:00 til 16:00 og það sama er upp á teninginum í dag.

Sjúkraliðar hafa boðað sólarhringsverkfall þann 19. maí og allsherjarverkfall þann 22. maí takist ekki að semja fyrir þann tíma.

Fyrirtæki og stofnanir innan SFV sem reknar eru fyrir opinbert fé og verkfallið nær til eru:

Ás Hveragerði, Dalbær, Eir, Grund, Hlévangur, HNLFÍ, Hornbrekka, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Hrafnista í Kópavogi, Hrafnista Reykjanesi, Kumbaravogur, Lundur, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún og Sunnuhlíð.


Tengdar fréttir

Sjúkraliðar í verkfall

Verkfall hefst mánudaginn 12. maí klukkan 08.00 til 16.00 hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu, sem starfa hjá stofnununum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sjúkraliðafélagi Íslands og SFR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×