Ótrúlegur sigur hjá Guðmundi og félögum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2014 19:45 Guðmundur Guðmundsson heldur aftur af Bjarte Myrhol í leiknum í kvöld. Vísir/Getty
Lærisveinar GuðmundarGuðmundssonar í Rhein-Neckar Löwen unnu gríðarlega mikilvægan sigur á Hamburg í stórleik helgarinnar í þýska handboltanum. Lokatölur urðu 32-31, Löwen í vil. Leikurinn var frábær skemmtun - jafn og spennandi. Hamburg endaði fyrri hálfleikinn betur og leiddi með þremur mörkum, 12-15, þegar liðin gengu til búningsherbergja. Löwen náði að jafna metin snemma í seinni hálfleik og þegar átta mínútur voru eftir leiddu þeir með fjórum mörkum, 28-24. Hamburg gafst þó ekki upp og þjarmaði að Löwen á lokamínútunum sem voru æsispennandi. Þegar 14 sekúndur voru eftir tók Guðmundur leikhlé í stöðunni 32-31. Að því loknu spilaði Löwen sig í færi, en skot Uwes Gensheimer missti marks. Markvörðurinn JohannesBitter kastaði boltanum fram þegar þrjár sekúndur voru eftir, Matthias Flohr greip boltann og kastaði honum í netið. Það leit allt út fyrir að Hamburg hefði tryggt sér stig, en eftir nokkra reikistefnu var markið dæmt ógiltvegna þess að leiktíminn hafði runnið út.Gensheimer var markahæstur í liði Ljónanna með átta mörk. Alexander Petersson átti einnig frábæran leik og skoraði sex mörk. Stefán Rafn Sigurmannsson komst ekki á blað. Spænski landsliðsmaðurinn Joan Canellas skoraði sjö mörk fyrir Hamburg. Risasigur Kiel á Lemgo fyrr í dag gerir það að verkum að Alfreð Gíslason og hans menn nú sitja í toppsæti deildarinnar með betri markatölu en Löwen.Leikirnir sem Kiel og Rhein-Neckar Löwen eiga eftir: Kiel - Flensburg, 11. maí Lübbecke - Kiel, 18. maí Kiel - Füsche Berlin 24. maí Eisenach - Rhein-Neckar Löwen, 10. maí Rhein-Neckar Löwen - Melsungen, 14. maí Gummersbach - Rhein-Neckar Löwen, 24. maí
Handbolti Tengdar fréttir Berlínarrefirnir unnu Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füsche Berlin unnu tveggja marka sigur, 25-23, á TuS N-Lübbecke á heimavelli sínum í þýska úrvalsdeildinni í handbolta í dag. 4. maí 2014 17:10 Risasigur hjá Kiel Kiel valtaði yfir Lemgo á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur urðu 46-24, Kiel í vil. 4. maí 2014 15:53 Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira
Berlínarrefirnir unnu Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füsche Berlin unnu tveggja marka sigur, 25-23, á TuS N-Lübbecke á heimavelli sínum í þýska úrvalsdeildinni í handbolta í dag. 4. maí 2014 17:10
Risasigur hjá Kiel Kiel valtaði yfir Lemgo á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur urðu 46-24, Kiel í vil. 4. maí 2014 15:53