Ingunn Ásdísardóttir hlaut íslensku þýðingaverðlaunin Stefán Árni Pálsson skrifar 23. apríl 2014 19:16 Ingunn Ásdísardóttir og Illugi Gunnarsson. mynd/aðsend
Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir þýðingu á erlendu skáldverki voru veitt á Gljúfrasteini fyrr í dag við hátíðlega athöfn. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra afhenti verðlaunin en þau hlaut Ingunn Ásdísardóttir fyrir þýðingu sína á færeysku skáldsögunni Ó - Sögur um djöfulskap eftir Carl Jóhan Jensen, sem Uppheimar gáfu út út. Í umsögn dómnefndar um verðlaunaverkið segir:Í Ó – søgur um djevulskap segir Carl Jóhan Jensen sögu Færeyja í óvenjulegri skáldsögu. Í bókinni fléttast saman margradda 200 ára epísk átakasaga sem Jensen eykur með ítarlegum neðanmálsgreinum sem grípa inní söguna, draga fram aðrar hliðar á frásögninni og snúa útúr henni.Orðfæri sögunnar er snúið, kostulegt og ævintýralegt, skreytt tilbúnum orðum og orðleysum, og verkið er endalaus sjóður af óvæntum uppákomum í tungumálinu. Ingunn Ásdísardóttir leysir með glæsibrag hverja þá erfiðu þraut sem við henni blasir. Aðrir tilnefndir voru María Rán Guðjónsdóttir fyrir Rödd í dvala eftir Dulce Chacón, Njörður P. Njarðvík fyrir Ljóð 1954-2004 eftir Tomas Tranströmer, Rúnar Helgi Vignisson fyrir Sem ég lá fyrir dauðanum eftir William Faulkner og Stefán Steinsson fyrir Rannsóknir – Iεtopiai eftir Heródótus frá Halikarnassus. Í dómnefnd sátu Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir, formaður, Árni Matthíasson og Hermann Stefánsson. Stjórn Bandalags þýðenda og túlka færir þeim þakkir fyrir þeirra góða og vandasama starf og óskar Ingunni Ásdísardóttur innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu. Bandalag þýðenda og túlka hefur veitt Íslensku þýðingaverðlaunin árlega síðan 2005 og er þetta því í tíunda sinn sem þau eru veitt. Verðlaununum eru ætlað að heiðra þýðendur og vekja athygli á þætti þýðinga og framlagi þýðenda til íslenskra bókmennta og bókmenntaarfs þjóðarinnar.
Mest lesið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Sjá meira