Formúla 1

Marussia vill eyðsluþak

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Jules Bianchi á Marussia bílnum
Jules Bianchi á Marussia bílnum Vísir/Getty
Keppnisstjóri Marussia, Graeme Lowdon telur að Formúla 1 stefni í óefni ef eyðsluþak kemst ekki á. Eftir að liðin höfðu samþykkt að setja skorður á eyðslu ákvað skipulagsnefnd Formúlu 1 að hætta við eyðsluþakið.

Haldinn verður fundur með öllum liðum í Formúlu 1, 1. maí til að ræða ákvörðun skipulagsnefndarinnar. Marussia er meðal þeirra liða sem eru virkilega ósátt við ákvörðunina. Liðið óttast að bilið milli stærstu og minnstu liðanna muni aukast.

Ætlunin er að setja í staðinn reglugerðarákvæði sem draga úr eyðslu liðanna.

„Í gegnum tíðina, hafa reglubreytingar leitt til niðurskurðar, við höfum minnkað hluti eins og æfingar og vélar,“ sagði Lowdon.

Þrátt fyrir þær tilraunir hefur McLaren gefið út opinberlega að þar á bæ noti menn meiri fjármuni en nokkurtíman áður.

„Við höfum nú reglugerðir sem gera það að verkum að hægt er að kaupa hraða - ef þú eyðir meiru getur þú farið hraðar. Ef þak verður sett mun það koma í veg fyrir að það teygjist um of á keppendum,“ sagði Lowdon.



Hann vill að Formúla 1 fylgji fordæmi NFL deildarinnar, þar sem eyðsluþak hefur leitt til jafnari keppni.


Tengdar fréttir

Óánægja með eyðsluþak í Formúlunni

Christian Horner, einn forráðamanna Red Bull í Formúlu 1, hefur bæst í hóp þeirra sem setja spurningamerki við áætlanir forráðamanna mótaraðarinnar um að setja liðum fjárhagslegar skorður.

Settar skorður í útgjöldum

Árið 2015 munu liðin í Formúlu 1 þurfa að halda sig innan 200 milljón evra í útgjöld. Það er gert til þess að jafna hlut liðanna. Stærstu liðin í dag eru að verja gríðarlegum fjármunum eða rúmum 47 milljörðum króna á hverju ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×