Dagur: Menn brosa allan hringinn núna Henry Birgir Gunnarsson skrifar 13. apríl 2014 17:06 Dagur lyftir bikarnum í dag. vísir/getty „
Þetta var svakalegt. Ég er alveg búinn. Þetta var aðeins of mikið,“ segir Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin, við Vísi en hans lið lagði Flensburg, 22-21, í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í dag. Þetta er fyrsti stóri titillinn í sögu félagsins. „Þetta er mögnuð stund fyrir okkur hjá félaginu. Það sem hefur verið að gerast á síðustu fimm árum hjá okkur er magnað. Þetta er viðurkenning á því starfi og það brosa allir allan hringinn núna.“ Dagur segist hafa mætt nokkuð bjartsýnn inn í helgina. Hans lið lék ekki nógu vel gegn Melsungen í undanúrslitunum í gær en hafði þó sigur. „Ég var viss um að við myndum spila betur í úrslitaleiknum. Við vissum að pressan yrði á Flensburg. Við spiluðum fantavörn og fengum markvörslu. Auðvitað smá heppni líka en þetta var verðskuldað og mjög sætt." Dagur er á sínu fimmta ári með liðið og segir að þetta sé hans stærsta stund á þjálfaraferlinum. „Þetta er án efa stærsta stundin. Ef maður kíkir á hvaða lið hafa unnið þennan titil þá eru það meira og minna bara Kiel síðustu ár og svo Flensburg og Hamburg einstaka sinnum. Það er því stórt að vinna þennan titil í baráttu við þessi stóru lið. Þetta er gríðarlega sterkt," segir Dagur stoltur. „Ég hefði alltaf verið stoltur af því að koma liðinu í úrslit en það er samt svo stór munur á því að vinna og komast í úrslit. Það er ekki það sama."
Handbolti Tengdar fréttir Fuchse Berlin bikarmeistari í Þýskalandi Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Fuchse Berlin unnu Flensburg í úrslitum þýska bikarsins í handbolta í dag. Með sigrinum brauð Dagur blað í sögu Fuchse Berlin en þetta var í fyrsta sinn sögu félagsins sem þeir vinna þýska bikarinn. 13. apríl 2014 14:39 Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Meiddist í Portúgal Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira
Fuchse Berlin bikarmeistari í Þýskalandi Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Fuchse Berlin unnu Flensburg í úrslitum þýska bikarsins í handbolta í dag. Með sigrinum brauð Dagur blað í sögu Fuchse Berlin en þetta var í fyrsta sinn sögu félagsins sem þeir vinna þýska bikarinn. 13. apríl 2014 14:39