Marin með áverka á brjóstkassa og heilahristing Ellý Ármanns skrifar 16. apríl 2014 11:45 myndir/einkasafn Stellu
Hafnfirðingurinn og fyrirsætan Stella Vigdís, 29 ára, sem býr í San Diego í Bandaríkjunum ásamt eiginmanni og tveimur börnum, Sóley eins árs og Gunnari þriggja ára, lenti í hörðum árekstri í vikunni þegar fjölskyldan keyrði heim úr Sea World skemmtigarðinum á bifreið af gerðinni BMW 550. Stella segir að einhver hafi vakið yfir fjölskyldunni þennan afdrifaríka dag og þakkar fyrir að ekki fór verr. „Við eiginmaðurinn og börnin vorum að keyra á hraðbrautinni og hann var undir stýri. Við sáum mann í einkennisbúning úti á götu að veifa okkur og hann bað okkur um að stoppa. Maðurinn virtist vera lögreglumaður. Þetta gerðist allt svo hratt,“ útskýrir Stella spurð hvernig áreksturinn bar að.Einhver passaði upp á fjölskylduna hennar Stellu daginn sem þau lentu í hörðum árekstri.mynd/einkasafn StelluRotuðust bæði og vöknuðu við að börnin voru í sjokki„Við hægðum varlega á okkur og stoppuðum og bílinn fyrir aftan okkur líka. Maðurinn sem veifaði okkur hleypur af stað og tekur búr sem var þar á miðri hraðbrautinni. Eina sem ég man eftir er að maðurinn hendir búrinu frá sér. Svo er það bara „lights out“ - það er að segja við rotuðumst bæði um leið og bíllinn klessti á okkur. Svo vöknuðum við 1-2 mínútum seinna við að Sóley dóttir okkar er hágrátandi og ég sé að Gunnar sonur okkar er í sjokki og segir ekki neitt.“ Stella starfar sem fyrirsæta samhliða því að hugsa um heimilið.Bensíntankurinn rifanði og bensín flaut út um allt„Við heyrum svo frá vitnum að bíllinn fyrir aftan okkur hafi rétt náð að sveigja út í kant og ökumaðurinn sem klessti á okkur var á um það bil 115 km hraða. Hefði bíllinn klesst beint aftan á okkur er víst að það hefði getað farið mjög illa en við vorum rosalega heppin að það kviknaði ekki í bílnum því bensíntankurinn rifnaði og bensín flaut út um allt,“ útskýrir hún en bíllin er gjörónýtur eftir áreksturinn.Vitni komu til hjálpar „Það voru mörg vitni sem komu til hjálpar. Lögreglan og sjúkrabílarnir voru fljótir á staðinn og fóru með okkur upp á spítala. Við vorum sett í segulómun og röntgen myndatökur en við sluppum alveg ótrúlega vel. Börnin eru enn aum og guttinn pínu bólginn kringum augun,“ segir hún og heldur áfram: „Ég og eiginmaðurinn erum í raun með sömu áverka – bæði marin, tognuð í hálsi, baki, hægri öxl og svo er ég líka með áverka á brjóstkassa og fékk heilahristing. Börnin okkar kvarta af og til en þau fengu lyf á slysó. Þau eru mjög aum líka en samt í voða góðu skapi. Það hefur eitthver verið að passa up pá okkur þennan dag ég bara trúi ekki hvað við erum ótrúlega heppin,“ segir hún þakklát.
Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira