Sport

Vill fá að sparka í áhorfendur með járngöddum

Einn margra sem hefur hlaupið inn á hafnaboltavöll upp á síðkastið.
Einn margra sem hefur hlaupið inn á hafnaboltavöll upp á síðkastið. vísir/getty
Það hefur færst í vöxt í bandarísku hafnaboltadeildinni að áhorfendur hlaupi inn á völlinn. Áhorfendur hafa margir hverjir gaman að þessum uppákomum en leikmenn hafa fengið nóg.

Einn þeirra er Adam Jones, leikmaður Baltimore Orioles, en hann vill gjarna fá að beita þessa áhorfendur ofbeldi.

"Mér finnst þetta vera heimskuleg hegðun og refsingin fyrir svona athæfi þarf að vera mun hærri. Deildin ætti líka að leyfa okkur leikmönnunum að sparka í þetta fólk með járngöddunum okkar. Þetta er svo heimskulegt," sagði Jones reiður.

"Ég skil þetta að vissu leyti. Það er einhver fullur og vill endilega komast í Sports Center. Þú endar samt í fangelsi, færð sekt og hugsanlega bann frá vellinum. Þetta er ótrúlega heimskulegt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×