Viðskipti innlent

Vísitala byggingarkostnaðar hækkar um 0,9% milli mánaða

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/pjetur
Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan mars 2014 er 120,0 stig sem er hækkun um 0,9% frá fyrri mánuði en þetta kemur fram í frétt frá Hagstofunni.

Vinnuliðir hækkuðu um 3,3% (áhrif á vísitölu 0,9%) vegna samningsbundinna hækkana. Verð á innlendu efni hækkaði um 0,2% ( 0,1%) en verð á innfluttu efni lækkaði um 0,2% (-0,1%).

Vélar, flutningur og orkunotkun hækkuðu samtals um 0,1%. Vísitalan gildir í apríl 2014.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 1,1%.



mynd/Hagstofan





Fleiri fréttir

Sjá meira


×