Bjarni segir gjaldeyrishöftin mögulega afnumin á þessu ári Samúel Karl Ólason skrifar 26. mars 2014 11:31 Vísir/Daníel
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, var í viðtali við Aftenposten sem birt var í dag en hann var í Noregi vegna ráðstefnu. Í viðtalinu segir hann að hægt sé að læra af þremur mikilvægum atriðum frá hruni fjármálakerfisins á Íslandi. Í fyrsta lagi hafi góð skuldastaða hins opinbera gert stjórnvöldum mögulegt að taka lán til að viðhalda efnahagslífinu í gegnum erfiða tíma. Í öðru lagi hafi sjálfstæður gjaldmiðill þýtt að ekki þurfti að lækka laun eins og víða var gert í Evrópusambandinu. Þess í stað var hægt að gera kerfisbreytingar vegna gengis krónunnar. Þá sagði hann neikvæð áhrif þess að láta stóra banka verða gjaldþrota, sem sagt bjarga þeim ekki, vera ofmetin. Bjarni sagði gjaldeyrishöftin virka eins og búr yfir hagkerfinu og þau sýni að staðan hér sé ekki eins og hún ætti að vera. Þó séu engin vandamál fyrir fjárfesta að koma til Íslands í dag, en huglæg áhrif haftanna séu veruleg. Þá sagði Bjarni að ríkisstjórnin stígi varlega til jarðar varðandi afnám haftanna, en vonast sé til þess að hægt væri að afnema þau fljótlega. Jafnvel á þessu ári. Í viðtalinu segir Bjarni að lagaumgjörð fjármálakerfisins fyrir hrun hafi verið of veikbyggð og ekki hafi verið greint nógu vel á milli viðskiptabanka og fjárfestingabanka. Þar að auki hafi eigendur bankanna fengið allt of mikið svigrúm. Þeir hafi tekið margar áhættusamar ákvarðanir sem hafi haft áhrif á hagkerfið í heild.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira