Mikill listamaður aðframkominn af fíkniefnaneyslu 28. mars 2014 11:00 Nick Cave Vísir/Getty
Heimildarmyndin 20.000 Days on Earth er opnunarmynd hátíðarinnar Reykjavík Shorts&Docs sem hefst 3. apríl. Myndin fjallar um tónlistarmanninn og Íslandsvininn Nick Cave sem er einn virtasti og hæfileikaríkasti listamaður samtímans. Ekki aðeins státar Nick af fjöldamörgum stórkostlegum plötum á ferlinum sem spannar fjörutíu ár. Hann hefur einnig samið tónlist fyrir bíómyndir og leikrit, skrifað bækur og honum hefur brugðið fyrir í nokkrum kvikmyndum í gegnum tíðina. Vinsæl þemu í textaskrifum hans eru trú, dauði, ást og ofbeldi en lífshlaup hans er afar skrautlegt. Fyrstu tuttugu ár ferilsins var hann í heróínmóki og óttaðist hann að frægðarsól hans myndi hnigna seint á tíunda áratugnum þegar hann sigraðist á sprautufíkn sinni. Margar sögur hafa gengið um Nick eftir fyrstu heimsókn hans til Íslands árið 1986 og skapaðist mikið neyðarástand þegar ekkert heróín fannst á landinu fyrir kauða. Í flestum sögunum, sem oft hafa birst nafnlausar á prenti hér og þar, er Nick lýst sem miklum listamanni sem var aðframkominn af eiturlyfjaneyslu. Áhyggjur Nicks reyndust á veikum grunni byggðar því þótt tónlist hans á síðari árum sé talsvert frábrugðin því sem aðdáendur hans vöndust snemma á ferlinum stígur hann varla feilspor þegar kemur að tónsmíðum. Persóna hans hefur þó ekkert breyst eins og hann sagði frá í viðtali við Guardian árið 2005. „Fólk heldur að maður verði góð manneskja bara af því að maður hættir að drekka og neyta eiturlyfja. Það er algjört kjaftæði.“Engin venjuleg mynd Það kom mörgum aðdáendum Nicks Cave í opna skjöldu þegar tilkynnt var að IainForsyth og Jane Pollard væru með heimildarmynd um hann, 20.000 Days on Earth, í bígerð. Mikil dulúð hefur fylgt þessum merka listamanni og hefur hann ávallt haldið einkalífi sínu fyrir sig. En 20.000 Days on Earth er engin venjuleg tónlistarheimildarmynd. Í myndinni spinnur Nick sjálfur senur um sköpunarferlið sem hann fer í gegnum í tónlist sinni og magnar myndin enn meira upp þá dulúð sem umlykur Nick frekar en að veita innsýn í daglegt líf hans. Í viðtali við Rolling Stone segist hann ekki hafa viljað gera hefðbundna tónlistarheimildarmynd. „Það er mikið af tónlistarheimildarmyndum til. Við horfðum á sumar þeirra og þær gáfu okkur frekar vísbendingu um hvað við ættum að forðast,“ segir Nick. „Ég vildi ekki að ráðist yrði inn í líf mitt. Flestar tónlistarheimildarmyndir þjóna bara kynningartilgangi. Ég var tregur til að gera myndina í byrjun því ég hafði engan áhuga á að gera þannig heimildarmynd,“ bætir Nick við. Í myndinni sést Nick ræða við sálfræðing en hann segist aldrei hafa hitt manninn áður en tökur hófust. „Hann er freudískur sálgreinir. Ég hafði aldrei hitt náungann. Þetta er í raun ekki skrifstofa einhvers. Þetta er myndver. En við hittumst á settinu og byrjuðum á samræðum sem vörðu í tvo daga,“ segir Nick í viðtalinu við Rolling Stone. Þá talar hann líka um sína fyrstu kynlífsreynslu í myndinni með konu sem klæddi hann upp í kvenmannsföt. Hann segir það að hluta til satt. „Þessu er ritstýrt auðvitað en ritstýring getur skemmt sannleikann. Þegar maður situr með einhverjum og talar við hann í langan tíma, nánast án hádegishlés, verður ómögulegt eftir smástund að passa svörin sín. Þá segir maður bara „Æi, til andskotans með þetta.““Susie Bicks og Nick CaveVísir/GettyFjölskyldumaðurinn Nick CaveNick kvæntist bresku fyrirsætunni Susie Bick árið 1999 og eiga þau saman tvíburasynina Arthur og Earl sem fæddust ári síðar. Fyrir átti tónlistarmaðurinn tvo syni, Luke, þrettán ára, með fyrrverandi eiginkonu sinni, brasilísku blaðakonunni Viviane Carneiro, og Jethro, einnig þrettán ára, sem hann á með hinni áströlsku Beau Lazenby. Jethro starfar í fyrirsætubransanum og hitti föður sinn ekki fyrr en hann var sjö eða átta ára.Lífshlaupið: 1957 Nicholas Edward Cave fæðist í Warracknabeal, smábæ í Victoria í Ástralíu. 1966 Byrjar í kór í Holy Trinity-dómkirkjunni í Wangaratta. 1970 Rekinn úr miðskólanum í Wangaratta. 1973 Kynnist Mick Harvey, Phill Calvert, John Cochivera, Brett Purcell og Chris Coyne. Þeir stofna hljómsveit með Nick sem söngvara. Árið 1977 fær hljómsveitin nafnið The Boys Next Door eftir örlitlar mannabreytingar. Seinna breyttist nafn bandsins í The Birthday Party. 1976 Faðir hans, Colin, deyr í bílslysi. 1977 Hættir í Monash-háskóla til að einbeita sér að tónlist. Á svipuðum tíma byrjar hann að nota heróín. 1984 The Birthday Party hættir. Í kjölfarið var stofnuð hljómsveitin The Bad Seeds sem er enn starfandi. 1986 Heldur tónleika á Íslandi með hljómsveit sinni The Bad Seeds. 1989 Gefur út sína fyrstu skáldsögu, And the Ass Saw the Angel. 1996 Er guðfaðir Heavenly Hiraani Tiger Lily, dóttur rokkarans Michaels Hutchence sem framdi sjálfsmorð árið 1997. Nick söng lag sitt Into My Arms af plötunni Boatman‘s Call í jarðarförinni hans. 2002 Heldur sólótónleika á Hótel Íslandi. 2005 Nick og Warren Ellis semja tónlist við leikritið Woyzeck í uppfærslu Vesturports. 2005 Kvikmyndin The Proposition er frumsýnd. Nick skrifaði handritið en leikstjórn var í höndum Johns Hillcoat. 2006 Nick og Warren Ellis semja tónlist við leikritið Hamskiptin í uppfærslu Vesturports. 2006 Stofnar hljómsveitina Grinderman með Warren Ellis, Martyn P. Casey og Jim Sclavunos. Hún gaf út tvær plötur – Grinderman árið 2007 og Grinderman 2 árið 2010. Hljómsveitin hætti 2011. 2006 Nick og Warren Ellis semja tónlistina fyrir kvikmyndina TheAssassination of Jesse Jamesby the Coward Robert Ford. 2006 Skrifar framhald af kvikmyndinni Gladiator að beiðni leikarans Russell Crowe en myndverið hafnaði handritinu. 2006 Heldur tónleika með hljómsveit sinni The Bad Seeds í Laugardalshöll. 2009 Gefur út sína aðra skáldsögu, The Death of Bunny Munro, sem fjallar um sölumann með kynlífsfíkn. 2010 Nick og Warren Ellis semja tónlist við leikritið Faust í uppfærslu Vesturports. 2012 Kvikmyndin Lawless er frumsýnd en Nick skrifaði handritið The Wettest County in the World sem var notað við gerð myndarinnar sem var leikstýrt af John Hillcoat. 2013 Nick Cave og hljómsveit hans The Bad Seeds halda tónleika á hátíðinni All Tomorrow‘s Parties á Ásbrú.
Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Sjálfskipaður Yoda okkar Íslendinga hefur rangt fyrir sér Lífið „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið Fleiri fréttir „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Er ástin blind? Eru konur ástsjúkari en karlar? Kom gríðarlega stórum hlut í gegnum kleinuhring án þess að skemma hann Förgun bóka áþekk því að lóga gæludýrum Sjá meira