Spilar Westbrook á ný með OKC á móti Miami Heat í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2014 14:45 Russell Westbrook. Vísir/Getty
Russell Westbrook, leikstjórnandi Oklahoma City Thunder, snýr mögulega aftur í kvöld þegar Oklahoma City Thunder, liðið með besta árangurinn í NBA-deildinni, mætir NBA-meisturum Miami Heat í áhugaverðum leik. Miami Heat liðið átti í miklum vandræðum með Oklahoma City Thunder þegar liðin mættust síðast en Kevin Durant leiddi þá sína menn til sigurs á heimavelli meistara Heat þrátt fyrir að liðið lenti 18 stigum undir í byrjun. Í kvöld er Oklahoma City Thunder á heimavelli og mögulega búið að endurheimta eina stærstu stjörnu liðsins. Westbrook hefur ekki verið með í síðustu 27 leikjum eða síðan að hann meiddist á hné 27. desember. „Þetta er eins og fá stjörnuleikmann á síðasta degi félagsskiptagluggans. Okkur hlakkar mikið til og erum svo sannarlega spenntir að fá hann til baka," sagði Kevin Durant sem sjálfur hefur verið stórkostlegur í fjarveru Westbrook. Russell Westbrook komst í gegnum sína fyrstu heilu æfingu í gær en þessi mikli íþróttamaður mun án vafa gera mjög gott lið enn betra. Westbrook er með 21,3 stig, 7 stoðsendingar og 6 fráköst að meðaltali í þeim 25 leikjum sem hann hefur spilað með OKC á þessu tímabili.Vísir/GettyVísir/Getty
NBA Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Lygilegur viðsnúningur Argentínu Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Víkingur - Györ | Ungversku meistararnir mæta í Víkina Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Fleiri fréttir Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Sjá meira