Innlent

Enginn slasaður í bruna í Skútuvogi

Jóhannes Stefánsson skrifar
Vísir/Böðvar
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er búið að slökkva eld sem kom upp í Skútuvogi 1 fyrir skömmu.

„Þetta var minniháttar bruni," segir Birta Björnsdóttir, fréttamaður á Stöð 2, sem var á svæðinu.

„Það kviknaði í út frá eldavélarhellu og slökkviliðið er að ljúka störfum," segir Birta. „Það er verið að reykræsta núna og það eru einhverjar minnháttar skemmdir. Sem betur fer er enginn slasaðu," segir Birta að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×