Tæplega 40 prósent telja Sigmund Davíð hafa staðið sig vel Heimir Már Pétursson skrifar 1. febrúar 2014 20:27
Þrjátíu og átta prósentum kjósenda finnst Sigmundur Davíð hafa staðið sig vel í embætti forsætisráðherra en mun fleiri eru ánægðir með störf hans meðal kjósenda stjórnarflokkanna. Á meðal kjósenda stjórnarandstöðuflokkanna er ánægjan mest hjá stuðningsmönnum Vinstri grænna. Í könnun sem Stöð 2 og Fréttablaðið gerðu dagana 29. og 30 janúar var spurt hversu vel eða illa fólki finndist Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa staðið sig í embætti forsætisráðherra, nú þegar hann hefur gengt því embætti í um sjö mánuði. 38 prósent telja að Sigmundur Davíð hafi staðið sig mjög eða frekar vel í embætti, en 31 prósent mjög eða frekar illa. Tíu prósent svara ekki spurningunni eða taka ekki afstöðu. Þeir sem sögðust ætla að kjósa stjórnarflokkanna ef kosið yrði nú eru eðlilega mun ánægðari með störf Sigmundar Davíðs. 84 prósent kjósenda Framsóknarflokksins telja hann hafa taðið sig vel en 9 prósent illa. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru nokkuð sáttir við störf forsætisráðherra, en 64 prósent þeirra telja að hann hafi staðið sig vel en 8 prósent að hann hafi staðið sig illa. Aðeins 13 prósent kjósenda Bjartrar framtíðar telja að Sigmundur Davíð hafi staðið sig vel, en 54 prósent að hann hafi ekki gert það. 17 prósent kjósenda Samfylkingarinnar eru sáttir við störf forsætisráðherra en 56 prósent telja hann hafa staðið sig illa. Hins vegar telja 25 prósent þeirra sem ætla að kjósa Vinstri græn samkvæmt könnunni að Sigmundur Davíð hafi staðið sig vel en 59 prósent að hann hafi staðið sig illa. 18 prósent kjósenda Pírata telja forsætisráðherra hafa staðið sig vel en helmingur þeirra að hann hafi staðið sig illa. Karlar eru sáttari við Sigmund Davíð en Konur. 43 prósent þeirra telja hann hafa staðið sig vel en 33 prósent kvenna. 30 prósent karla telja að hann hafi staðið sig illa en 33 prósent kvenna eru þeirrar skoðunar, en 8 prósent karla svara ekki eða taka ekki afstöðu og 11 prósent kvenna gera það ekki heldur. Ekki er mikill munur á afstöðu fólks eftir aldri.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Sjá meira