Konur unnu afgerandi sigur í Hafnarfirði Heimir Már Pétursson skrifar 2. febrúar 2014 14:15 Rósa Guðbjartsdóttir nýr oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði er ánægð með að konur skip fjögur af sex efstu sætum listans eftir prófkjör í gær.
Rósa Guðbjartsdóttir vann afgerandi sigur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði í gær og leiðir listann fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Konur skipa fjögur af sex efstu sætum listans. Þrettán hundruð og fimm manns tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði í gær en Rósa Guðbjartsdóttir og Kristinn Andersen stefndu bæði á fyrsta sætið. Rósa fékk afgerandi kosningu í forystusætið með 597 atkvæðum eða um 46 % atkvæða. Og ég er ákaflega, hrærð, stolt og ánægð með þessa niðurstöðu. Það sýnir sig að Sjálfstæðismenn í bænum kunna að meta mín störf á kjörtímabilinu og liðnum árum. Fyrir það er ég ákaflega þakklát og fyrir það traust sem ég fæ,“ segir Rósa. Rósa atti kappi við Valdimar Svavarsson fráfarandi oddvita flokksins í Hafnarfirði í prófkjöri fyrir kosningarnar árið 2000 og þá munaði bara tveimur atkvæðum á honum og Rósu, en Valdimar bauð sig ekki fram nú. Rósa er fyrsta konan til að leiða lista Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. „Jú, það er rétt. En það er ekki síður sögulegt sem gerðist í prófkjörinu í gær. Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði voru að raða fjórum konum á meðal sex efstu frambjóðenda,“ segir oddvitinn nýji. Á eftir Rósu koma Kristinn Andersen í öðru sæti, Unnur Lára Bryde í þriðja, Ingi Tómasson í 4. sæti, Helga Ingólfsdóttir 5. sæti og Kristín Thoroddsen í því sjötta. Sjálfstæðisflokkurinn er nú með fimm af ellefu bæjarfulltrúum. Ykkur vantar bara einn fulltrúa til að hafa meirihluta í bænum, ertu bjartsýn á að ykkur takist það? „Ég finn fyrir gríðarlega mikilli sveiflu í okkar garð. Ég finn líka að Hafnfirðingar þrá að það verði breytingar við stjórn bæjarins. Og á undanförnum mánuðum og misserum og ekki hvað síst í aðdraganda prófkjörsins finn ég fyrir miklum stuðningi við gildi okkar Sjálfstæðismanna og ég er bjartsýn,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir nýr oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira