Óléttar konur mega æfa og lyfta þungum lóðum Hrund Þórsdóttir skrifar 6. febrúar 2014 20:00
Jakobína Jónsdóttir gengur með sitt fyrsta barn og er komin 35 vikur á leið. Hún er vön því að æfa mjög mikið en lætur sér þessa dagana nægja klukkutíma æfingu, fimm sinnum í viku. „Ef ég væri ekki að æfa myndi mér bara líða mjög illa held ég. Mér finnst rosalega gott að taka æfingu og svitna aðeins. Þannig líður mér betur, ég sef betur og borða hollara, þetta tengist allt,“ segir Jakobína. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði þar sem Jakobína gerir ótrúlegustu æfingar, er hún augljóslega hreystin uppmáluð en hvað skyldi læknir segja? Er í lagi að æfa af krafti á meðgöngu? „Já, við álítum að það sé í lagi, sérstaklega ef konur eru vanar því frá því áður en þær voru þungaðar,“ segir Hulda Hjartardóttir, aðstoðaryfirlæknir á fæðinga- og meðgöngudeild. Hún segir í góðu lagi að lyfta þungum lóðum og segir konur helst þurfa að vara sig á íþróttum sem auki líkur á að þær detti eða reki sig harkalega í. Margir telja hættulegt að óléttar konur lyfti þungu upp fyrir höfuðið en Hulda tekur ekki undir það. „Ég held að þetta sé bara ein af þessum flökkusögum . Ég þekki engin vísindaleg rök fyrir því að þetta megi ekki.“ Konur þurfa sjálfar að meta þol sitt en gæta þess að hvílast og borða og drekka vel. „Einhverjir hafa haft áhyggjur af því að ef konur æfi mjög lengi, lengur en 45 mínútur, þá geti orðið ofhitnun í líkamanum en ekkert bendir til þess,“ segir Hulda. Konur í úthaldsíþróttum virðast eignast minni börn en aðrar en það þarf ekki að vera slæmt. „Sérstaklega þar sem börn hér á Íslandi eru með þeim stærstu og þyngstu í heiminum og það hefur frekar verið talið vandamál en hitt.“ Ef konur telja sig þola hreyfingu segir Hulda hana góða. „Það er mælt með hálftíma þjálfun fimm til sjö sinnum í viku fyrir allar óléttar konur,“ segir hún og Jakobína tekur undir. „Ef þið getið hreyft ykkur og ykkur líður vel er um að gera að hreyfa sig og reyna að borða hollan mat, manni líður miklu betur þannig,“ segir Jakobína að lokum.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira