Lögreglan hefur afskipti af berfættum skokkara Jakob Bjarnar skrifar 7. febrúar 2014 10:45 Eyvindur Karlsson segist ekki svo harður að hann hlaupi berfættur að vetrarlagi. hag
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því á Facebooksíðu sinni í gær að þeir hafi þurft að hafa afskipti af berfættum manni sem sást á hlaupum í miðborginni. Henni hafði borist tilkynning þess efnis að þarna væri maður á ferð sem greinilega var ekki alveg í lagi. „Lögreglan fór þegar að svipast um eftir manninum og sá hann fljótlega á hlaupum skammt frá lögreglustöðinni við Hlemm. För hans var stöðvuð, en ekkert athugavert reyndist vera við manninn nema kannski það að hann var berfættur. Slíkt er í sjálfu sér ekki beinlínis lögreglumál og var skokkaranum, sem var allsgáður og sagðist stunda það að hlaupa berfættur, leyft að halda hlaupinu áfram. Auðvitað er þetta ekkert einsdæmi, og t.d veit sá sem þetta ritar að menn hlaupa berfættir heilt maraþon úti í heimi og þykir ekki tiltökumál. Að hlaupa berfættur í fljúgandi hálku um stræti og torg á Íslandi er hins vegar dálítið annað mál, eða svo myndu e.t.v. einhverjir halda,“ segir lögreglan. „Þetta var ekki ég,“ segir Eyvindur Karlsson sem er eini þekkti skokkarinn sem hefur þann háttinn á að hlaupa berfættur. „Það eru greinilega fleiri farnir að hlaupa berfættir. En hef aldrei gerst svo brattur að hlaupa berfættur í sandinum og saltinu. Ég er á sandölum að vetrarlagi.“ Eyvindur segir ljóst að þarna sé gríðarlega harður nagli á ferð. „Þetta er einhver svakalegur. Ég á ekkert í þennan. Þetta er almennilegt.“ Eyvindur telur þetta vísbendingu um að það færist í aukana að menn hlaupi berfættir. Og tekur því ekki fjarri að rétt væri að stofna samtök berfættra skokkara. Hitt er svo annað mál að fólki bregður gjarnan í brún þegar slíkir hlauparar verða á vegi þeirra. „Skil ekki hvað viðkvæmni þetta er. Fólk hefur stoppað mig og spurt útí þetta. Eitt sinn var stoppað og spurt hvort það væri eitthvað að, hvort ég þyrfti aðstoð? Það er auðvitað ágætt í sjálfu sér að fólki standi ekki á sama. Dregur þá ályktun að einhver hafi tapað skónum sínum og sé í vandræðum. Náungakærleikur og hið besta mál.“ Innlegg by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Sjá meira