Telur umræðuna ekki vera á Villigötum Elimar Hauksson skrifar 9. febrúar 2014 08:00 Ingibjörg segir Júlíus fara með rangt mál þegar hann segir rúmgrindur túlkaðar sem fjötra.
Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri dvalarheimilisins Áss í Hveragerði sagði í kvöldfréttum Stöðvar tvö í gær að umræðan um að gamalt fólk sé fjötrað á dvalarheimilum sé á villigötum. Sagði Júlíus að í gæðavísum Landlæknisembættisins flokkist hliðargrindur á rúmum sem fjötrar og því sé orðið rangnefni í þeirri umræðu sem verið hefur. Dr.Ingibjörg Hjaltadóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun segir það ekki rétt að rúmgrindur séu inní útreikningum gæðavísa Landlæknis. „Ég held að það sé misskilningur hjá Júlíusi að rúmgrindur séu inní útreikningum gæðaviðmiða. Til þess að þessi gæðavísir telji þá þarf íbúi að vera með líkamsfjötra, bundinn á höndum og fótum í rúmi eða bundinn í stól. Þetta þarf að vera gert á hverjum einasta degi til að viðkomandi teljist fjötraður samvkæmt gæðavísinum. Ef það er ekki gert þá kemur það ekki fram í talningu,“ segir Ingibjörg. Hún telur umræðuna um fjötra ekki vera á villigötum. „Ég veit ekki hvaða umræðu Júlíus er að tala um. Umræðan sem ég hef tekið eftir í fjölmiðlum hefur verið sú að notkun fjötra sé ekki góð. Ég held það séu allir sammála um það að eigi ekki að fjötra fólk nema í ítrustu neyð,“ segir Ingibjörg og bætir við að góður árangur hafi náðst hér á landi í að minnka notkun fjötra. „Undanfarin þrjú til fjögur ár hefur notkun fjötra á hjúkrunaheimilum hér á landi minnkað marktækt. Árið 2009 voru 9,6 prósent íbúa með fjötra daglega en árið 2012 var talan komin niður í 6,7 prósent. Það er að mínu mati glæsilegur árangur. Almennt er talið æskilegt að vera fyrir neðan 12 prósent og við erum því langt fyrir neðan viðmiðunarmörk í þessum málum,“ segir Ingibjörg Hjaltadóttir.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira