Snarræði slökkviliðsmanna bjargaði miklu Heimir Már Pétursson skrifar 30. janúar 2014 20:00
Hluti verksmiðjuhúsnæðis í Dugguvogi í Reykjavík er gerónýtt eftir mikinn bruna í húsnæðinu í hádeginu í dag. Slökkviliði tókst með snarræði að koma í veg fyrir að eldurinn breiddist út í aðra hluta hússins. Fjölmargir tilkynntu um eldinn til slökkviliðs enda barst mikill reykur frá honum sem sást víða og þegar slökkvilið bar að garði voru rúður á annarri hæð í austurenda hússins sprungnar út vegna hitans. Mikill eldur logaði á hæðinni í austurendanum og má ætla að hún sé gerónýt eftir brunann. „Þeir sáu það strax þegar þeir (slökkviliðsmenn) voru að koma úr Árbænum að þetta var mikið. Þannig að við kölluðum út aukalið enda gríðamikill eldur og hiti,“ sagði Marteinn Geirsson deildarstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem stjórnaði aðgerðumJóhannes Tryggvason eigandi skiltagerðarinnar Dengsa var nýfarinn af efri hæðinni um klukkan tólf á hádegi. „Ég fór í mat klukkan tólf. Síðan fékk ég símatal tuttugu mínútur yfir og sagt að húsið væri alelda,“ segir,“ segir Jóhannes. Einn af starfsmönnum skiltagerðarinnar var á neðri hæðinni þegar eldurinn kom upp. „Hann var í tölvu en þá fór netsambandið og hann labbaði upp og fékk bara mökkinn á móti sér og kom sér út,“ segir Jóhannaes. Slökkviliði gekk vel að ráða niðurlögum mesta eldsins en hann blossaði annað slagið upp aftur og læsti sig einnig í þak hússins. Slökkviliðsmenn rifu upp stóran hluta þaksins þar sem glæður leyndust og rauk úr, til að koma í veg fyrir að eldurinn læsti sig í austurenda hússins og tókst það. En eldur blossaði þó upp aftur í Vesturendanum af og til sem slökkviliðsmenn drápu jafn harðan. Jóhannes segist vel tryggður og hann ætli að halda starfseminni áfram. „Það slasaðist enginn og þetta er bara högg sem maður fær og tekur á því,“ segir Jóhannes. Það sé nóg að gera í skiltagerðinni, en fyrirtækið sér m.a. um stór auglýsingaskilti víðs vegar um höfuðborgarsvæðið.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Sjá meira