Glass yfir sig hrifinn af Íslandi og Hörpu Jakob Bjarnar skrifar 31. janúar 2014 12:11 Víkingur Heiðar segir Glass stefna á að koma aftur til Íslands hið fyrsta.
Konsertpínaistinn Víkingur Heiðar Ólafsson er nú staddur úti í Gautaborg en þar flutti hann, ásamt hinu heimsþekkta tónskáldi og píanista, Philip Glass, efnisskrá sem þeir fluttu nýverið, ásamt hinni japönsku Maki Namekawa, í Hörpu. Þorbjörn Þórðarson fréttamaður tók skemmtilegt viðtal við Glass við það tækifæri. Svo skemmtilega vill til að í dag fagnar Glass 77 ára afmæli sínu.Sprækur og frjór svo af ber „Já, ég hitti hann í hádeginu,“ segir Víkingur Heiðar í samtali við Vísi. „Annars er ég að fara til Berlínar seinni partinn en hann verður eftir að fylgja eftir sinfóníutónleikum hér um helgina. Hann virkar reyndar alls ekki 77 ára, sprækari en ég ef eitthvað er og þakkar því meðal annars því að hafa verið grænmetisæta frá 20 ára aldri og því að stunda Qigong.“ Víkingur Heiðar segir Glass ótrúlega frjóan mann og skemmtilegan. „Hann finnur einhvern veginn alltaf tíma til að semja 5 klukkustundir dag hvern á túrunum. Ætli slíkt vinnuþrek sé ekki eitthvað sem hann byggði upp þegar hann vann sem leigubílstjóri á Manhattan á daginn og samdi á nóttunni... Hann vann auðvitað fyrir sér sem leigubílstjóri í New York fram á fimmtugsaldur meðfram tónsmíðum og tónleikum.“Heyrði ekki pennasmellina Að sögn Víkings Heiðars ber Glass Íslandi og Hörpu vel söguna og stefnir Glass ótrauður á að sækja land og þjóð heim á ný. „Hann átti ekki von á húsi í þessum klassa norður á Íslandi. Og hann hafði orð á því að flyglarnir væru dásamlegir og að það væri góð tilfinning að spila í hljómburðinum í Eldborg.“ Að endingu er ekki úr vegi að spyrja Víking Heiðar út í nafnlaust bréf sem fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Jónssonbirti á síðu sinni, þar sem tónleikagestur kvartar sáran undan því að Ríkharður Örn Pálsson, tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins, hafi nánast eyðilagt tónleikana með því að smella í sífellu penna sínum. „Ég heyrði ekki í pennasmellum eða öðru. Mér fannst reyndar hlustunin á tónleikunum óvenju góð,“ segir Víkingur Heiðar.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Leggjast gegn því að útivistartími tíu til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira