Átján þúsund börn deyja daglega Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 31. janúar 2014 13:57 Með markvissri bráttu gegn barnadauða síðastliðin ár hefur tekist að bjarga 90 milljón barna frá dauða. MYND/UNICEF
18 þúsund börn deyja daglega í heiminum af ástæðum sem hægt er að fyrirbyggja og oft með einföldum og ódýrum hætti, þetta kemur fram í árlegri skýrsluu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um stöðu barna í heiminum sem kom út í gær. Með markvissri bráttu gegn barnadauða síðastliðin ár hefur þó tekist að bjarga 90 milljón barna frá dauða. Tölurnar miða við að tíðni barnadauða hefði haldist sú sama og árið 1990 en mikill árangur hefur náðst frá þeim tíma. UNICEF ætlar ekki að láta staðar numið fyrr en ekkert barn lætur lífið af orsökum sem sannarlega er hægt að koma í veg fyrir. Meginþráðurinn í skýrslunni er að hvert einasta barn skipti máli og mikilvægt sé að ná til allra barna.Barnaþrælkun veruleiki 15 prósent barna 11 prósent stúlkna í heiminum eru giftar fyrir 15 ár aldur að því er fram kemur í skýrslunni. Það ógnar rétti þeirra til góðrar heilsu, menntunar og verndar. Barnaþrælkun er veruleiki 15 prósent barna í heiminum og með því er átt við að þau séu látin stunda vinnu sem komi í veg fyrir að þau geta stundað nám og tómstundir. Vinnan stofni jafnvel lífi þeirra í hættu. Í skýrslunni kemur líka fram að bæta þurfi fæðingarskráningar enn frekar. Ástandið hafi þó batnað mikið en enn séu 230 milljón börn hvergi skráð og þar með séu þau formlega ekki til. Þau börn eru útsettari fyrir skorti á grunnþjónustu og hvers kyns réttindabrotum.Gríðarlegur árangur frá 1989 Gríðarlegur árangur hefur náðst frá því að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur árið 1989. Skólasókn í fátækustu ríkjum heims hefur sem dæmi aukist verulega og yfir 80 prósent barna á grunnskólaaldri í þeim löndum hefja nú nám í skóla. Á heimsvísu hafa aldrei fleiri stúlkur stundað nám en nú. Dauðsföllum af völdum mislinga hefur fækkað um 82 prósent síðan árið 2000 en mislingar sem eru bráðsmitandi veirusýking og hefur verið ein helsta dánarorsök barna yngri en fimm ára í heiminum. Árangurinn má að miklu leyti rekja til aukinna bólusetninga. Gangnasöfnun um hagi barna gerir þau sýnileg og verður til þess að hægt er að bregðast við þörfum barna og bæta réttindastöðu þeirra. UNICEF leggur áherslu á að tölvfræði ein og sér breyti ekki heiminum en hún greiði hins vegar fyrir breytingum með því að draga fram hvar skóinn kreppi. „Tölfræðigögn eru ekki bara tölur. Þau lýsa veruleika barna um allan heim. Þau sýna okkur hvaðan við komum og hvert beri að stefna. Gagnaöflun er gríðarlega mikilvæg fyrir aukna velferð barna,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdarstjóri UNICEF á Íslandi, sem leggur áherslu á að með áreiðnalegri gagnaöflun sé hægt að þrýsta á um að réttindi allra barna verði virt.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Fleiri fréttir „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Sjá meira