Fengu mygluð jólakort tveimur árum of seint Kjartan Atli Kjartansson skrifar 31. janúar 2014 13:53 Daníel Fannar og bréfin sem komu of seint. Ásamt afsökunarbeiðni frá Póstinum. „
Ég hvet alla sem sendu okkur í fjölskyldunni jólakort árið 2011 til þess að láta okkur vita, svo við getum sett þá aftur á jólakortalistann,“ segir Daníel Fannar Jónsson, sem fékk loksins jólakort frá árinu 2011 í hendurnar, rúmlega tveimur árum á eftir áætlun. Jólakortin fundust í fjörunni á Álftanesi og voru nánast ónýt og voru illa lyktandi að sögn Daníels. „Þegar ég opnaði útidyrahurðina mætti mér ógeðsleg fýla. Samt var konan mín búin að pakka kortunum inn í poka. Fnykurinn yfirtók íbúðina.“ Daníel segir kortin vera ónýt. „Við náðum ekki að lesa neitt þeirra. Þau voru mygluð og ógeðsleg, þannig að við losuðum okkur bara við þau. Við vitum því enn ekki hverjir það voru sem sendu okkur þessi jólakort. Ég get samt allavega sagt að umslögin hafa örugglega verið fín þegar þau voru keypt,“ segir hann.Rakið til bréfbera sem brást „Við erum búin að rekja þetta til starfsmanns sem brást starfskyldum sínum og er ekki lengur í vinnu hjá okkur,“ segir Brynjar Smári Rúnarsson, forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins. Hann segir fyrirtækið að biðjast velvirðingar á þessu leiðindamáli. „Við vitum að bréfin fundust í fjörunni úti á Álftanesi. Þegar við fengum þau í hendurnar voru þau blaut, sölt og mörg hver úldin. Við komum þeim bréfum til skila sem við gátum,“ útskýrir Brynjar. Hafði samband við lögreglu „Ég var búin að stroka eitthvað af þessu fólki útaf jólakortalistanum,“ segir Úlfhildur Helga Guðbjartsdóttir, annar Álftnesingur sem fékk jólakortin alltof seint. „Mér finnst þetta ótrúlega leiðinlegt mál. Mér tókst að opna öll fjögur kortin sem ég fékk og get lesið eitthvað af textanum. Einhver voru frá kunningjum og vinum sem maður talar kannski ekki við dagsdaglega og ég hélt að þeir hefðu ákveðið að hætta að senda mér kort,“ útskýrir Úlfhildur. Hún hafði samband við lögreglu þegar hún sá mynd af póstinum á Facebook. Hún segir unglingsstúlkur hafa fundið póstinn og sett mynd á netið. „Þetta er auðvitað alvarlegt mál. Þarna voru ljósmyndir og jólagjafir sem voru ekki að komast til skila.“
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira