Saka formann kjörnefndar um alvarlegan trúnaðarbrest Samúel Karl Ólason skrifar 1. febrúar 2014 10:00 Bragi Michaelsson, Margrét Friðriksdóttir og Ármann Kr. Ólafsson. Vísir/Vilhelm/Aðsendar
Hreinn Jónasson, Brynhildur Gunnarsdóttir, Guðjón Gísli Guðmundsson, Júlíus Hafstein og Aðalsteinn Jónsson, saka Braga Michaelsson, formann kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, um alvarlegt trúnaðarbrot í tilkynningu til fjölmiðla. Samkvæmt umfjöllun DV um málið þann 28. janúar síðastliðinn eru þau öll á stuðningslista Margrétar Friðriksdóttur, skólameistara Menntaskólans í Kópavogi, sem sækist eftir fyrsta sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Auk þess er því haldið fram að Jón Gunnarsson alþingismaður og Gunnar Birgisson séu á listanum. Segja þau að nöfnum sínum hafi verið lekið til DV og að um alvarlegan trúnaðarbrest sé að ræða. „Nú ber svo við að nöfnum einstakra aðila sem rituðu undir fyrir hina mætu konu Margréti Friðriksdóttur er lekið í DV augljóslega í þeim tilgangi að ala á óeiningu innan Sjálfstæðisflokksins og skaða framboð Margrétar,“ segir í tilkynningunni. Þau segja Braga Michaelson vera ábyrgan, því hann hafi persónulega tekið á móti framboðsbréfum. Prófkjörið verður haldið þann 8. febrúar næstkomandi. Alla tilkynninguna má sjá hér að neðan.Vegna umfjöllunar í DV þriðjudaginn 28. janúar um meðmælendur vegna framboðs Margrétar Friðriksdóttur í prófkjör sjálfstæðismanna í Kópavogi sjá undirritaðir sig knúna til koma fram með eftirfarandi, þar sem nöfnum okkar var lekið úr trúnaðarskjölum kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.Fyrir það fyrsta fögnum við mjög framboði Margrétar Friðriksdóttur til forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi. Fjöldinn allur af sjálfstæðismönnum og öðrum bæjarbúum gerir slíkt hið sama. Sjálfstæðismenn í Kópavogi eru orðnir langþreyttir á þeim vinnubrögðum sem viðgengist hafa innan flokksins síðustu misseri. Það er ljóst að einhverjir óttast framboð Margrétar og nú skal öllum brögðum beitt til að koma á hana höggi. Gera framboð hennar tortryggilegt. Völdum skal haldið og allt gert sem til þarf. Aðferðin er þekkt og hefur áður verið beitt af mikilli hörku, ekki bara í Kópavogi heldur víðar.Samkvæmt reglum Sjálfstæðisflokksins skal hvert framboð stutt af 20 flokksmönnum og hafa flestir góðfúslega ritað undir fyrir frambjóðendur sé eftir því leitað. Það er almenn venja og þykir ekkert tiltökumál enda eru framboðsbréf hvers frambjóðanda trúnaðarbréf til kjörnefndar. Þeir sem helst hafa verið tregir til að styðja frambjóðendur á þennan hátt eru formenn kjörnefnda sem nánast alltaf gæta fyllsta hlutleysis, halda trúnað og huga að heildarhagsmunum.Nú ber svo við að nöfnum einstakra aðila sem rituðu undir fyrir hina mætu konu Margréti Friðriksdóttur er lekið í DV augljóslega í þeim tilgangi að ala á óeiningu innan Sjálfstæðisflokksins og skaða framboð Margrétar. Hér er um alvarlegt trúnaðarbrot að ræða sem formaður kjörnefndar, Bragi Michaelson, er ábyrgur fyrir enda tók hann persónulega við framboðsbréfum. Þetta er í annað sinn á fáum dögum sem hann gerir sig sekan um alvarlegt trúnaðarbrot. Áður lét hann hafa eftir sér í fjölmiðlum að hann styddi Ármann Kr. Ólafsson og teldi að flokksmenn ættu að flykkja sér bak við hann, auk þess sem hann nafngreindi og rægði þrjá frambjóðendur. Slíkt framferði formanns kjörnefndar er líklega einsdæmi í sögu Sjálfstæðisflokksins. Gera verður þá kröfu til forystumanna Sjálfstæðisflokksins að tekið verði snarlega á þessu máli af festu. Verði svona vinnubrögð liðin eru það skilaboð um að í Sjálfstæðisflokknum helgi tilgangurinn meðalið. Það er sannarlega ekki hugsjón meginþorra sjálfstæðisfólks.Sjálfstæðisfólk í Kópavogi þarf enn og aftur að skammast sín fyrir þau vinnubrögð sem ákveðinn hópur í flokknum viðhefur. Þetta gengur ekki lengur, breytinga er þörf.Hreinn Jónasson, Brynhildur Gunnarsdóttir, Guðjón Gísli Guðmundsson, Júlíus Hafstein, Aðalsteinn Jónsson.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Sjá meira