Fann svipaða flík á netinu á fimm sinnum lægra verði en á Íslandi Kjartan Atli Kjartansson skrifar 20. janúar 2014 11:10 Elsa Harðardóttir, ásamt kærasta sínum Eggert Gunnþóri Jónssyni. Hún gagnrýnir verslunina Aftur á bloggsíðu sinni.
Bloggarinn Elsa Harðar sagði frá því í gær að hún hafi fundið svipaðar kimono flíkur á eBay og hún keypti í versluninni Aftur á miklu lægra verði. „En þannig er mál með vexti að á mínum daglega Ebay rúnti fann ég óþægilega líkan, já eða bara alveg eins kimono frá heildsölu í Kína á 30 dollara,“ bloggar Elsa. Bára Hólmgeirsdóttir eigandi verslunarinnar Aftur svarar Elsu, í samtali við Vísi: „Ég get ekki kommenterað á hvað fólk finnur á eBay. Fólk getur verið heppið,“ útskýrir hún. Verslunareigandinn segist ekkert vita um flíkurnar sem Elsa fann á netinu. „Eina sem mér dettur í hug er að stundum þegar fatahönnuðir láta verksmiðjur fjöldaframleiða föt fyrir sig eru fleiri föt framleidd en hönnuðurinn bað um. Svo eru þessi umfram föt seld ódýrt. En ég veit ekki hvort það á við í þessu tilviki. Ég veit í raun bara ekkert um þessar flíkur sem hún talar um," segir Bára. Elsa veltir líka fyrir sér hvað sé hönnun Aftur og hvað ekki. „Ég veit ekki hvort Aftur panti kimonoana að utan og selji sem sína hönnun, hvort þetta sé einfaldlega copy/paste dæmi eða bara ótrúleg tilviljun.“Bára vill taka það skýrt fram að þessar flíkur séu alls ekki seldar sem hönnun Aftur. „Þetta er augljóslega ekki frá okkur. Við kaupum þessar flíkur frá Bandaríkjunum. Allar flíkurnar sem við hönnum eru endurunnar og þessar sem hún talar um eru það greinilega ekki. Um 60% af því sem við seljum í búðinni okkar er eitthvað sem við kaupum að utan.“ útskýrir hún. „Í raun kemur mér ekki við hvað fólk verslar á netinu. Ég kaupi inn gæðavöru og við bjóðum kimono-flíkur á lægra verði en margar aðrar verslanir. Ég vildi bara að þessi stúlka hefði haft samband við mig beint, þá hefði hún getað fengið beint svar,“ segir Bára. Elsa hefur nú þegar pantað sér tvo kimonoa, á 8680 krónur.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira