Lífið

U2 og Will Smith í sama þætti

U2 koma fram í fyrsta þætti Jimmy Fallon sem tekur við af Jay Leno
U2 koma fram í fyrsta þætti Jimmy Fallon sem tekur við af Jay Leno Nordicphotos/Getty
Jimmy Fallon mun taka við The Tonight Show af Jay Leno þann 17. febrúar næstkomandi á NBC. Í fyrsta þættinum mun hljómsveitin U2 koma fram en þetta kom fram á Twitter-síðu Jonathans Cohens, sem sér um tónlistarbókanir fyrir Fallon.

Samkvæmt fréttasíðunni Variety mun Will Smith einnig vera gestur Fallons í þessum fyrsta þætti.

Hljómsveitin U2 fékk Óskars-tilnefningu fyrir lagið Ordinary Love úr kvikmyndinni Mandela: Long Walk to Freedom, nokkrum dögum eftir að hljómsveit hlaut Golden Globe verðlaun fyrir sama lag.

Þá eru uppi orðrómur þess efnis að ný plata frá sveitinni komi út á árinu en sveitin hefur ekki gefið út plötu í fimm ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×