Íslensk kona í Lærdal segir mildi að eldurinn kviknaði ekki að næturlagi María Lilja Þrastardóttir skrifar 20. janúar 2014 19:45
Tuttugu og þrjár byggingar, þar af sextán íbúðarhús brunnu til grunna um helgina í Lærdal í Noregi. Talið er að tjónið nemi að minnsta kosti hundrað milljónum norskra króna, eða um tveimur milljörðum íslenskra króna. Íslensk kona sem búsett er í bænum segir mildi að eldurinn hafi ekki kviknað eftir að bæjarbúar lögðust til hvílu, slíkt hefði haft hræðilegar afleiðingar. Níutíu manns þurftu að leita aðhlynningar á sjúkrahúsi vegna reykeitrunar. Þá þykir mildi að enginn hafi slasast alvarlega. Að minnsta kosti sextán fjölskyldur í bænum misst allar eigur sínar en Norðmenn hafa verið snöggir til að rétta hjálparhönd og hefur öllum fjölskyldunum verið úthlutaður bráðabyrgða samastaður. Ekki er enn ljóst hvað það var sem olli eldsvoðanum sem átti upptök sín í litlu timburhúsi og breyddist afar hratt í nærliggjandi hús sem einnig voru úr timbri. Norska öryggislögreglan hefur verið fengin til aðstoðar á rannsókninni og er öflug vakt á svæðinu. Talin er þónokkur hætta á að eldurinn blossi upp að nýju. Bruninn í Lærdal er sá allra stæsti í landinu í 45 ár eða frá því 1969 þegar stórbruni varð í Tromsø. Rafmagnslaust hefur verið á svæðinu en samkvæmt upplýsingum fréttastofu er kominn straumur á nokkur hús í bænum það er þó af skornum skammti.Sigurbjörg Gunnarsdóttir er búsett í Lærdal. Hún var í bíl á leið sinni aftur heim þegar fréttastofa náði af henni tali.Viðtalið við Sigurbjörgu má heyra í meðfylgjandi myndskeiði úr kvöldfréttum Stöðvar 2.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira